Blysin slógu Bæjara ekki út af laginu Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. janúar 2026 21:39 Þykk móða myndaðist eftir að stuðningsmenn Köln kveiktu í blysum þegar leikurinn var nýhafinn. Federico Gambarini/picture alliance via Getty Images Bayern Munchen hélt sigurgöngu sinni áfram gegn 1. FC Köln í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Leikurinn tafðist um drykklanga stund eftir að stuðningsmenn Köln kveiktu í blysum og lognið í borginni lét reykinn sitja stilltan. Mögulega hafði það einhver jákvæð áhrif á heimamenn því þeir spiluðu ljómandi vel og komust yfir í fyrri hálfleik, með marki Linton Maina, en Bæjarar sýndu síðan styrk sinn og unnu að lokum 1-3. Serge Gnabry skoraði fyrra mark Bayern og Kim Min-Jae bætti öðru marki við. Ísak Bergmann Jóhannesson.Getty/Oliver Kaelke Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn af varamannabekknum á 78. mínútu, skömmu eftir seinna mark Bayern, en tókst ekki að snúa stöðunni við. Þvert á móti þá skoraði ungstirnið Lennart Karl þriðja markið fyrir Bayern, þrátt fyrir að hafa mætt seint í rútuna sem keyrði liðið til Köln. Hann var afsakaður því þjálfarinn Vincent Kompany mætti líka seint, samkvæmt þýskum fjölmiðlum. Kompany mætti seint í rútuna. Ísak Bergmann var byrjunarliðsmaður í öllum leikjum nema einum fyrir áramót en hefur nú verið á bekknum í fyrstu tveimur leikjunum eftir áramót. Köln hefur ekki fagnað sigri í síðustu átta leikjum og situr fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Þýski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Íslenski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City ÍA - FH | Heldur sigurganga Skagamanna áfram eða nær FH vopnum á ný? Keflavík - ÍBV | Heimamenn vilja halda sér í efri hlutanum KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórnvölinn hjá Stjörnunni Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Sjá meira