Þjálfararnir voru dæmdir í átján mánaða bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2026 18:00 Landsliðsþjálfarinn Magnus Brevig og íþróttastjórinn Jan-Erik Aalbu ræða hér við fjölmiðla í miðjum storminum. EPA/Terje Pedersen Norsku skíðastökksþjálfararnir Magnus Brevig, Thomas Lobben og Adrian Livelten hafa allir verið dæmdir í átján mánaða bann en þetta staðfestir Alþjóðaskíðasambandið
Dómurinn kemur til vegna skíðastökkhneykslisins hjá norska landsliðinu þar sem Norðmenn voru uppvísir að breyta búningum keppenda. Norska ríkisútvarpið segir frá. Alþjóðaskíðasambandið, FIS, sendi frá sér fréttatilkynningu sem má nálgast hér. Adrian Livelten, skraddari liðsins, þétti saumana og notaði of sterkan saum til að sauma gallana saman á HM í Þrándheimi í mars en sérstök reglugerð FIS kveður á um ákveðna mýkt í saumunum. Bæði skraddarinn og landsliðsþjálfarinn voru látnir taka pokann sinn eftir að upp komst um svindlið. Vísvitandi gert „Það sem við gerðum var að hagræða og breyta göllunum á þann hátt að það brýtur gegn reglugerðum. Þetta var vísvitandi gert og þess vegna er þetta svindl,“ sagði Magnus Brevig, þjálfari norska landsliðsins, við fjölmiðla. „Nokkrir af okkur tóku ákvörðunina en ég hefði átt að stöðva hana sem yfirþjálfari. Ég hef í raun ekkert annað að segja en við keyrðum fram úr okkur í búbblunni okkar á HM. Við stigum þetta skref og fórum langt yfir línuna. Við biðjumst afsökunar á því. Ég hef svo oft spurt mig af hverju við gerðum þetta. Við sjáum eftir þessu eins og hundar,“ sagði Brevig í miðju hneykslinu. Verðlaunahafarnir Marius Lindvik, Kristoffer Eriksen Sundal og Johann André Fofang voru allir sviptir medalíum sínum. 750 þúsund króna sekt Þessir þrír þjálfarar þurfa einnig að greiða rúmlega sextíu þúsund norskar krónur hver í sekt sem jafngildir um 750 þúsund íslenskum krónum. Það var siðanefnd FIS sem tók ákvörðunina, að tillögu stjórnar sambandsins. Brevig var landsliðsþjálfari en Adrian Livelten og Thomas Lobben voru þjónustumaður hans og aðstoðarmaður hans. Þremenningarnir geta áfrýjað ákvörðun miðvikudagsins til Alþjóða íþróttadómstólsins (CAS) í Sviss.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Sjá meira