Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Agnar Már Másson skrifar 17. janúar 2026 17:59 Donald Trump Bandaríkjaforseti. AP/Alex Brandon Donald Trump Bandaríkjaforseti á ekki að geta lagt sérstaka tolla á Danmörku án þess að leggja tolla á öll Evrópusambandsríkin enda eru þau í tollabandalagi. Forsetinn hótar nú vinalöndum Grænlands með tolli, í von um að það auðveldi Bandaríkjamönnum að leggja landið undir sig.
Politiken bendir á þetta en Trump tilkynnti á samfélagsmiðlum í dag að hann hyggðist leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi. Öll sendu þau hermenn til Grænlands á dögunum. Forsetinn skrifaði sömuleiðis að tollurinn myndi hækka um 15 prósentustig og nema 25 prósentum 1. júní hafi Bandaríkjamenn ekki fengið yfirráð yfir Grænlandi. Ekkert bendir til þess í færslu Trump að Ísland verði fyrir barðinu á þessum tollum þrátt fyrir að tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar hafi verið sendir til Grænlands. Norðmenn sendu aðeins tvo fulltrúa síns hers. ESB semur þegar viðskiptastríð er á milli ESB og Bandaríkjanna, að sögn Politiken, sem bendir á að ESB hafi nýlega samið um fríverslunarsamning við fjölda landa í Suður-Ameríku. Sá samningur nefnist Mercosur-samningur og líklegast þarf að taka hann með í reikninginn þegar Trump hótar nú aftur viðskiptastríði, þó ekki gegn ESB heldur gegn einstaka ESB-löndum auk Bretlands og Noregs. Aftur á móti gætu Bandaríkjamenn valið vörur sem eru sérstaklega viðkvæmar fyrir Danmörku, til dæmis með því að setja sérstaka tolla á lyf, sem myndi samt sem áður gilda um öll ESB-lönd en væntanlega bitna harðast á Danmörku. Politiken bendir þó á að þetta tollahamar Bandaríkjaforsetans sé eitt af þeim vopnum sem Trump hafi beitt þegar hann hefur fá aðra valkosti í stöðunni. Greinandi danska miðilisins veltir því fyrir sér hvort nýlegar ljósmyndir frá Danmörku og Grænlandi, þar sem sjá mátti fjölda fólks á mótmæla áformum Trumps um Grænland, hafi verið það sem fékk Trump til að leggja á þennan Grænlandstoll.
Donald Trump Evrópusambandið Skattar, tollar og gjöld Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Fleiri fréttir Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Sjá meira