Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Samúel Karl Ólason skrifar 20. janúar 2026 12:13 Úkraínumenn notast meðal annars við F-16 herþotur til að skjóta niður stýriflaugar og dróna. EPA/ROBIN VAN LONKHUIJSEN Rússar gerðu í nótt umfangsmiklar árásir á orkukerfi Úkraínu þar sem notast var við 372 sjálfsprengidróna og skot- og stýriflaugar. Slíkar árásir hafa verið tíðar að undanförnu en Úkraínumenn eru að ganga í gegnum einn kaldasta veturinn á svæðinu í mörg ár.
Kuldinn hefur farið í tuttugu gráður í Kænugarði en þar urðu að minnsta kosti 5.600 rafmagns- og heitavatnslaus í morgun. Í heildina eru Rússar sagðir hafa notað 339 dróna af ýmsum gerðum til árásanna, auk 18 skotflauga af gerðinni Iskander-M og fimmtán X-101 stýriflaugar, svo eitthvað sé nefnt. Úkraínumenn segjast hafa skotið niður 315 dróna, 13 X-101 stýriflaugar og fjórtán Iskander-M. Í samtali við blaðamenn í morgun sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, að til að verjast árásum Rússa í nótt hafi Úkraínumenn notað flugskeyti fyrir um áttatíu milljónir evra. Það væri bæði erfitt að finna flugskeytin í loftvarnarkerfin og peningana fyrir þeim. Áttatíu milljónir evra samsvara um 11,7 milljörðum króna. There are already initial reports on the situation in the regions after the Russian strike. Kyiv and the region, Vinnytsia, Dnipro, Odesa, Zaporizhzhia, Poltava, Sumy, and other regions of ours. Repair crews, the State Emergency Service of Ukraine, and all necessary forces are… pic.twitter.com/ByKsmNMFY0— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) January 20, 2026 Úkraínumenn hafa í vetur ítrekað kallað eftir fleiri loftvarnarkerfum og skotfærum fyrir þau kerfi. Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum sagði Selenskí að Rússar framleiði töluvert af skot- og stýriflaugum og það sýni að þeir hafi leiðir fram hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Þær eigi að gera Rússum erfiðara að nálgast íhluti í eldflaugar og önnur nútímahergögn. Frekari aðgerða væri þörf. Hann segir einnig að ef Úkraínumenn hefðu ekki nýlega fengið sendingar af flugskeytum fyrir Patriot-loftvarnarkerfi og önnur, hefðu árásir næturinnar farið mun verr.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Tengdar fréttir Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Bandaríkjaforseti hefur boðið Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sæti í svonefndu „friðarráði“ sínu um uppbyggingu Gasastrandarinnar. Ekki er ljóst hvort að sömu kröfur verði gerðar til Pútín og til annarra leiðtoga sem eru sagðir hafa fengið slíkt boð. 19. janúar 2026 11:15 Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Rússar hafa gert árásir á hvert einasta orkuver í Úkraínu og ítrekaðar árásir á aðra borgaralega innviði, á sama tíma og Úkraínumenn standa frammi fyrir einhverjum kaldasta vetri á svæðinu í árabil. Með því vilja Rússar draga máttinn úr úkraínsku þjóðinni til að verjast innrás þeirra en á undanförnum þremur árum hafa Rússar eingöngu lagt undir sig eitt og hálft prósent af Úkraínu. 16. janúar 2026 13:00 Kennir Selenskí enn og aftur um Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, standi í vegi friðar í Úkraínu en ekki Vladimír Pútín, forseti Rússlands. Trump heldur því fram að Pútín vilji binda enda á innrás sína í Úkraínu, sem hefur staðið yfir í tæp fjögur ár, en Selenskí vilji það ekki. 15. janúar 2026 11:28 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira
Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Bandaríkjaforseti hefur boðið Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sæti í svonefndu „friðarráði“ sínu um uppbyggingu Gasastrandarinnar. Ekki er ljóst hvort að sömu kröfur verði gerðar til Pútín og til annarra leiðtoga sem eru sagðir hafa fengið slíkt boð. 19. janúar 2026 11:15
Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Rússar hafa gert árásir á hvert einasta orkuver í Úkraínu og ítrekaðar árásir á aðra borgaralega innviði, á sama tíma og Úkraínumenn standa frammi fyrir einhverjum kaldasta vetri á svæðinu í árabil. Með því vilja Rússar draga máttinn úr úkraínsku þjóðinni til að verjast innrás þeirra en á undanförnum þremur árum hafa Rússar eingöngu lagt undir sig eitt og hálft prósent af Úkraínu. 16. janúar 2026 13:00
Kennir Selenskí enn og aftur um Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, standi í vegi friðar í Úkraínu en ekki Vladimír Pútín, forseti Rússlands. Trump heldur því fram að Pútín vilji binda enda á innrás sína í Úkraínu, sem hefur staðið yfir í tæp fjögur ár, en Selenskí vilji það ekki. 15. janúar 2026 11:28