Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins Jakob Bjarnar skrifar 20. janúar 2026 15:49 Brynjar segir kraftaverk hafa gerst eftir að Guðmundur Ingi gekkst undir hjartalokuaðgerð og Inga hafi risið upp, eftir að hafa verið öryrki til fjölmargra ára og reynst hamhleypa til allra verka. Vísir Brynjar Níelsson, fyrrverandi stjórnmálamaður, hefur látið lítið fyrir sér fara á Facebook, sem hafði fram til þess að hann var skipaður tímabundið dómari við héraðsdóm, verið hans helsti skotpallur. En nú er eins og allar flóðgáttir hafi brostið. „
Á nýju ári hefur margt merkilegt og undarlegt gerst tengt stjórnmálum. Fyrrum menntamálaráðherra fór í hjartalokuaðgerð sem varð til þess að hann þurfti ekki að nota hækjur lengur eftir að hafa þurft að skakklappast með þær árum saman. Þetta mun vera mesta kraftaverk sögunnar síðan Jesús reisti Lazarus upp frá dauðum. Ég vildi gjarnan hitta þennan lækni og athuga hvort að hægt væri að fá náttúruna aftur með svona aðgerð,“ skrifar Brynjar. Og hann er rétt að hita upp. Óvinnufær öryrki reynist hamhleypa Og Brynjar segir kraftaverkin fleiri og beinir nú spjótum sínum að formanni Flokks fólksins, henni Ingu Sæland: „Formaður Flokks fólksins tók að sér að sinna þremur ráðuneytum á sama tíma þrátt fyrir að hafa verið óvinnufær öryrki árum eða áratugum saman áður en stjórnmálaferillinn hófst. Og krafturinn er slíkur að hún tekur að sér að auki verkefni úr öðrum ráðuneytum ókeypis.“ Brynjar, sem hefur verið orðaður við framboð í sveitarstjórnarkosningum, nánar tiltekið fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni, heldur ótrauður áfram og nú er það Ólafur Ragnar Grímsson sem er dreginn fram til vitnis. „Eftir það sem er á undan gengið á stjórnarheimilinu var ekki skrítið að fyrrum forseti lýðveldisins sæi sig knúinn til að mæta í Silfrið til að hvetja ráðherra ríkisstjórnarinnar til að anda með nefinu og einblína á að gæta hagsmuna þjóðarinnar umfram hagsmuni annarra. Mátti skilja fyrrum forseta svo að andlegt jafnvægi væri afskaplega mikilvægt stjórnmálamönnum sem ætli að gera gagn.“ Áfengisneysla eldri borgara Brynjar lýkur hugleiðingum sínum á að tala um að fréttir af aukinni áfengisneyslu eldri borgara hafi slegið sig mest á nýju ári. Hann segir eiginkonu sína áhyggjufulla vegna þessa, sér í lagi eftir að hann sjálfur gekk í hóp eldri borgara. Það gæti skekkt myndina. „Svo finnst Soffíu allt í lagi að eldri borgarar staupi reglulega enda slík iðja talin árangursrík glímunni við einmanaleika og leiðindi.“ Brynjar hefur gefið það út að hann sé hættur í stjórnmálum en eftir því sem Vísir kemst næst eru þeir sem sjá um lista Sjálfstæðisflokksins í borginni langt í frá búnir að gefast upp á að suða í honum að gefa kost á sér til að taka sæti á lista.
Samfélagsmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Flokkur fólksins Eldri borgarar Áfengi Tengdar fréttir „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Formaður Landsambands eldri borgara segir fréttir af aukinni áfengisdrykkju eldra fólks hafa komið verulega á óvart. Vandamálið sé falið og þörf sé á fræðslu til eldri borgara um skaðsemi áfengis. 20. janúar 2026 13:00 Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins beindi fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnum á þinginu áðan en hann hjólaði í Flokk fólksins. 19. janúar 2026 15:57 Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Sjá meira
„Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Formaður Landsambands eldri borgara segir fréttir af aukinni áfengisdrykkju eldra fólks hafa komið verulega á óvart. Vandamálið sé falið og þörf sé á fræðslu til eldri borgara um skaðsemi áfengis. 20. janúar 2026 13:00
Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins beindi fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnum á þinginu áðan en hann hjólaði í Flokk fólksins. 19. janúar 2026 15:57