Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. janúar 2026 16:43 Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, vill lækka sakhæfisaldur. EPA Sænsk yfirvöld hyggjast lækka sakhæfisaldur úr fimmtán árum í þrettán ár. Yfirvöld ytra glíma við fjölda barna sem ganga í raðir glæpasamtaka. Lægri sakhæfisaldur ætti þó einungis við í alvarlegri glæpum.
Gunnar Strommer, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, segir að neyðarástand ríki í landinu þar sem fjöldi barna hefur gengið í raðir glæpagengja samkvæmt BBC. Það sé mikilvægt verkefni ríkisstjórnarinnar að stöðva að börn séu nýtt í glæpastarfsemi. Hann tekur fram að tillagan fæli ekki í sér almenna lækkun sakhæfisaldurs heldur einungis vegna alvarlegustu glæpa líkt og morð, tilraun til manndráps, sprengjuárásir, gróf vopnalagabrot og gróf kynferðisbrot. Börn þrettán ára og eldri gætu átt yfir höfði sér fangelsisdóma. Samkvæmt gögnum frá sænska landsráðinu um forvarnir gegn glæpum hefur fjöldi grunaðra einstaklinga yngri en fimmtán ára tvöfaldast á síðasta áratug. Rannsóknarnefnd á vegum ríkisstjórnarinnar mælti með því að lækka sakhæfisaldurinn niður í fjórtán ár í alvarlegri málum. Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, sagði að aldurinn yrði lækkaður þar sem börn væru „miskunnarlaust nýtt af glæpasamtökum til að fremja alvarlega glæpi“. Því grípi yfirvöldin til svo harðra aðgerða. Verði löggjöfin samþykkt muni hún taka gildi strax í sumar. Sætir gagnrýni Ríkisstjórnin hefur birt drög að frumvörpunum og hafa þau sætt mikilli gagnrýni. Talið er að mun yngri börn gætu farið að taka þátt í að fremja glæpi. Þá eru sænsku fangelsin ekki búin undir að taka á móti svo ungum börnum og gæti vistun þeirra verið brot á mannréttindum þeirra. Einnig geti það frekar haft neikvæð áhrif og afleiðingar á börnin að refsa þeim í stað þess að sinna þeim á annan hátt. Enn á eftir að fara yfir frumvarpið og síðan verður það lagt fyrir sænska þingið.
Svíþjóð Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira