Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Kjartan Kjartansson skrifar 28. janúar 2026 15:00 Af þilfari bandaríska flugmóðurskipsins Abrahams Lincoln. Það er sagt komið til Persaflóa og tilbúið til árása á Íran. Vísir/EPA Bandarískur herskipafloti nálgast Íran og hótar Bandaríkjaforseti því að tíminn sé að renna út fyrir írönsk stjórnvöld að semja um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra. Íranar segjast reiðubúnir til viðræðna en þeir séu einnig að verjast af festu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði hótanir sínar í færslu á persónulegum samfélagsmiðli í dag. Sagði hann herskipaflotann sigla „hratt, með miklum krafti, áhuga og staðfestu“ í átt að Íran. „Vonandi kemur Íran fljótt „að borðinu“ og gerir sanngjarnt og réttlátt samkomulag — ENGIN KJARNORKUVOPN,“ skrifaði forsetinn. Flotinn væri stærri en sá sem stjórn hans hefði sent að Venesúela sem Bandaríkjastjórn heldur nú í herkví. Hann væri tilbúinn að beita ofbeldi til þess að ná markmiðum hans. Vísaði forsetinn svo til loftárása Bandaríkjamanna á kjarnorkustöðvar í Íran í fyrra. „Næsta árás verður miklu verri. Ekki láta það gerast aftur,“ skrifaði forsetinn sem er afar ósáttur við að hafa ekki hlotið friðarverðlaun Nóbels í fyrra. Svo virðist sem að bandaríska flugmóðurskipið Abraham Lincoln sé komið til Miðausturlanda. Heimildir breska ríkisútvarpsins innan bandaríska varnarmálaráðuneytisins herma að skipið sigli fremst í herskipaflota þar. Sendinefnd Írans hjá Sameinuðu þjóðunum brást við hótunum með því að segja að stjórnvöld í Teheran væru tilbúin til viðræðna sem byggðust á gagnkvæmri virðingu og hagsmunum. Þau væru aftur á móti tilbúin að verja sig „sem aldrei fyrr“ ef þeim væri ógnað.
Íran Bandaríkin Donald Trump Mótmælaalda í Íran Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira