Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Lovísa Arnardóttir skrifar 30. janúar 2026 14:15 Húsnæði EFTA í Brussel EFTA Innleiðingarhalli tilskipana á Íslandi hefur minnkað frá síðasta frammistöðu mati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hefur innleiðingarhalli EES-EFTA. Halli Íslands við innleiðingu reglugerða eykst þó verulega. .
Samkvæmt tilkynningu hefur innleiðingarhalli tilskipana á Íslandi minnkað úr 2,1 prósenti í 1,5 prósent. Það er minnsti innleiðingarhalli sem mælst hefur í desemberútgáfum frammistöðumatsins síðan 2022. Útistandandi tilskipunum fækkaði úr 17 í 12. Jafnframt fækkar tilskipunum sem hafa verið útistandandi í meira en tvö ár niður í eina. Sú tilskipun er á sviði félagaréttar og hefur verið útistandandi í meira en fjögur ár. Þá kemur fram að eftir góðan árangur á árunum 2020 til 2024 í að draga úr fjölda reglugerða sem ekki höfðu verið innleiddar að fullu í landsrétt hafi orðið veruleg aukning á innleiðingarhalla Íslands. Fjöldi reglugerða sem ekki höfðu verið innleiddar að fullu í landsrétt jókst úr 65 í 108 frá frammistöðumatinu í desember 2024. Samkvæmt því er 2,2 prósenta innleiðingarhalli reglugerða á Íslandi. Af þessum útistandandi reglugerðum eru 56,5 prósent á sviði fjármálaþjónustu og 16,7 prósent á sviði samgöngumála. Í tilkynningu kemur fram að frammistöðumatið sýni að meðaltal óinnleiddra tilskipana í EES-EFTA ríkjunum minnkaði niður í eitt prósent, þar sem bæði Ísland og Noregur fækkuðu óinnleiddum tilskipunum frá fyrra ári. Ísland, Noregur og Liechtenstein fara þó öll yfir 0,5 prósenta viðmið um útistandandi gerðir sem ESA og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa sett, en aðeins tvö EES-ríki ná þessu viðmiði. Ísland fækkaði tilskipunum sem hafa verið útistandandi í meira en tvö ár úr fjórum í eina. Noregur er áfram með tvær tilskipanir sem hafa verið útistandandi í meira en tvö ár, en sú elsta þeirra hefur verið óinnleidd í meira en sjö ár. Í Liechtenstein jókst halli við innleiðingu tilskipana lítillega, eða úr 0,6 prósentum í 0,7 prósent, og eru nú sex tilskipanir óinnleiddar, sem er það mesta síðan í desember 2020. Ein þeirra, á sviði orku- og tæknilegra viðskiptahindrana, hefur verið útistandandi í meira en tvö ár. Í tilkynningu kemur einnig fram að heildarfjöldi opinna samningsbrotamála fækkaði lítillega úr 162 í 157 frá frammistöðumatinu í desember 2024. Samningsbrotamálum vegna Íslands fækkaði úr 124 í 120 og vegna Noregs úr 31 í 28. Á hinn bóginn jókst fjöldi samningsbrotamála sem varða Liechtenstein úr sjö í níu. Þrátt fyrir þessa þróun er Liechtenstein áfram það EES-EFTA-ríki sem er með fæst samningsbrotamál. Af þeim samningabrotamálum sem eru enn til meðferðar hjá EES-EFTA ríkjunum varða 74 prósent þeirra óinnleiddar EES-gerðir. Í tilkynningu segir að frammistöðumat innra markaðssviðs EES-EFTA-ríkjanna sé birt samhliða frammistöðumati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á ESB-aðildaríkjunum, sem gerir kleift að bera saman EES-EFTA-ríkin og aðildarríki ESB. Meðalinnleiðingarhalli tilskipana á innri markaði meðal aðildarríkja ESB jókst úr 0,8 prósentum í 1,1 prósent frá frammistöðumatinu í desember 2024 og aðeins tvö aðildarríki ná 0,5 prósenta viðmiðinu. Fjórtán aðildarríki ESB, ásamt Íslandi, voru með innleiðingarhalla yfir einu prósenti. Ísland, þrátt fyrir að hafa minnkað innleiðingarhallann úr 2,1 prósenti í 1,5 prósent, er áfram í neðri hluta töflunnar á meðan Liechtenstein og Noregur, bæði með 0,7 prósent, teljast til þeirra sem standa sig betur, þó enn yfir 0,5 prósenta markmiðinu. Tvö ESB-ríki, Búlgaría og Slóvakía, ásamt Íslandi og Noregi, fækkuðu útistandandi tilskipunum. Á hinn bóginn fjölgaði óinnleiddum tilskipunum hjá 23 aðildarríkjum ESB auk Liechtenstein. Þessar niðurstöður fyrir EES EFTA-ríkin byggja á 819 tilskipunum sem teknar voru upp í EES-samninginn og tóku gildi 30. nóvember 2025, samanborið við 1.022 tilskipanir í Evrópusambandinu. Munurinn skýrist af því að sumar tilskipanir falla utan gildissviðs EES-samningsins, auk þess sem þær tilskipanir sem falla innan hans taka oft gildi og eru felldar úr gildi í ESB áður en samsvarandi ferlum innan EES er lokið. Túlka ber samanburðinn milli EES- og ESB-ríkja með þetta í huga. Frammistöðumatið er gefið út tvisvar á ári og sýnir fjölda tilskipana og reglugerða sem hafa verið innleiddar í EES-samninginn og tekið gildi en ekki verið innleiddar í landsrétt. Þá veitir frammistöðumatið auk þess upplýsingar um fjölda opinna samningsbrotamála og annarra atriða sem snerta framkvæmd EES-samningsins. Mikilvægt er að EES-ríkin innleiði löggjöf Evrópska efnahagssvæðisins á réttum tíma og með réttum hætti þannig að íbúar og fyrirtæki á öllum innri markaðnum fái notið fulls ávinnings af EES-samningnum.
Evrópusambandið EFTA Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Bein útsending: Kynna verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Sjá meira