Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. janúar 2026 17:06 Brotist var inn til Mayu Jama og Rúbens Dias og fjölda hluta stolið. Getty Sjónvarpskonan Maya Jama og fótboltamaðurinn Rúben Dias lentu í miður skemmtilegu atviki þegar brotist var inn í heimili þeirra í Cheshire í norðvesturhluta Englands.
Hin breska Maya Jama er þekktust fyrir að vera kynnir Ástareyjunnar (e. Love Island) og söngvaþáttarins The Masked Singer. Hinn portúgalski Rúben Dias er miðvörður Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Parið býr í 580 fermetra glæsihýsi við Woodbrook-veg í Alderley Edge-hverfi í Cheshire-sýslu, sem liggur sunnan við Liverpool og Manchester, en hvorugt þeirra var heima þegar innbrotið átti sér stað. Dias var að spila útileik gegn Galatasaray í Tyrklandi í meistaradeildinni þetta kvöld meðan Jama var í Suður-Afríku við tökur á Love Island: All Stars. Maya og Dias birtu jólakossamynd af sér um daginn. Götublöð Bretlandseyja herma að hlutum að andvirði þúsunda punda hefði verið stolið, þar á meðal tískufatnaður, skartgripir og raftæki. Bresta ríkisútvarpið hefur eftir lögreglu að glæpurinn hafi verið tilkynntur rétt eftir ellefu það kvöldið og málið sé enn til rannsóknar. Hin 31 árs Jama og hinn 28 ára Dias hafa verið saman síðan í nóvember 2024 fluttu inn saman í nóvember síðastliðnum. Áður höfðu þau búið í sundur, Jama í Lundúnum og Dias í Manchester-borg, sem gerði að verkum að þau þurftu að flakka mikið á milli heimila. Parið hefur haldið sambandi sínu nokkurn veginn utan sviðsljóssins og hafa til að mynda ekki sést saman á rauða dreglinum. Aftur á móti birta þau reglulega myndir hvort af öðru á samfélagsmiðlum. Dias og Jama eru ekki fyrstu fórnarlömb innbrotsþjófa sem fylgjast með ferðalögum fótboltamanna. Á sama svæði hafa leikmennirnir Jack Grealish, Raheem Sterling og Riyad Mahrez lent í sambærilegum innbrotum.
Bretland Enski boltinn Raunveruleikaþættir Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira