Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 10:25 Búist er við að tugþúsundir manna hafi verið handteknir í mótmælunum. AP Æðstiklerkur Íran hótar að hvers konar árás af höndum Bandaríkjamanna gæti hrint að stað svæðisstríði. Spenna milli ríkjanna tveggja hefur aukist til muna eftir miklar óeirðir í Íran síðustu vikur.
Ayatollah Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, ávarpaði þjóðina á ríkismiðli landsins í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undanfarna daga hótað Írönum loftárásum setjist þeir ekki að samningaborðinu vegna mögulegrar kjarnorkuáætlunar Írana og Bandaríkjamanna. Þá hafa hótanirnar líka snúist um framgöngu stjórnvalda gagnvart mótmælendum. „Bandaríkjamenn ættu að vita að ef þeir hefja stríð, verður það í þetta skipti svæðisstríð,“ sagði Khamenei í ávarpi sínu í morgun. Í umfjöllun AP segir að hótanirnar séu þær afdráttarlausustu sem Khamenei hefur beitt gagnvart Bandaríkjamönnum eftir að Trump sendi herskipaflota að Íran fyrr í vikunni og sagði tímann fyrir Írani til að setjast að samningaborðinu að renna út. „Við erum ekki hvatamennirnir að þessum deilum og það er ekki okkar vilji að ráðast á önnur lönd. En íranska ríkið mun veita hverjum þeim sem ræðst á okkur eða áreitir þungt högg,“ bætti hann við. Í ávarpinu vísaði Khamenei til mótmæla síðustu vikna sem valdaráns en í Íran getur uppreisnaráróður varðað dauðarefsingu. Reiknað er með að tugþúsundir mótmælenda hafi verið handteknir síðustu vikur og heilbrigðisstarfsmenn segja mögulegt að tugþúsundir hafi verið drepnar frá upphafi mótmælanna 28. desember. „Markmið þeirra var að eyðileggja viðkvæmar og áhrifaríkar stöðvar sem snúast um að stýra landinu. Þeir réðust á lögreglu, ríkisstofnanir, aðstöðu [Byltingarvarðarins], banka, moskur og brenndu eintök af Kóraninum,“ sagði Khamenei. Trump sagði við blaðamenn seint í gærkvöldi að hann hefði enn ekki ákveðið hvað hann ætti að gera í málefnum Íran. Hann sneiddi fram hjá spurningum um hvort ástandið yrði betra í Teheran ef Bandaríkjamenn slökuðu á hótunum í garð Írana. „Sumir telja að svo sé, sumir ekki.“
Íran Bandaríkin Donald Trump Kjarnorka Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira