Tvær milljónir barna deyja í þögn Gunnar Salvarsson skrifar 2. febrúar 2026 10:31 Daglega síðustu misseri höfum við öll séð og heyrt fréttir af drápum á börnum, síðast í morgun frá Gaza, þar sem þó á að heita að vopnahlé sé í gildi. Mörg börn hafa einnig látið lífið í innrásarstríði Rússa í Úkraínu, svo ekki sé minnst á þau hundruð barna sem hafa verið drepin í Súdan og á öðrum vígvöllum í heiminum. Stór hluti þessara skelfilegu drápa á börnum á sér stað nánast í beinni útsendingu. Dauði þeirra er sýnilegur og endurtekinn í myndum og myndskeiðum, tákn um grimmd mannsins. Enn fá einhverjir sting í hjartað, þótt margir séu orðnir ónæmir fyrir slíkum fregnum, algengar sem þær eru. En það eru önnur börn í veröldinni sem deyja án þess að nokkur veiti því sérstaka athygli. Engar myndir. Engar fyrirsagnir. Engir neyðarfundir. Þetta eru börnin í fátækum ríkjum sem deyja úr malaríu, lungnabólgu, niðurgangi eða vannæringu. Deyja á fyrstu árum ævinnar úr vel þekktum og læknanlegum sjúkdómum. Dauði þeirra hreyfir við engum, nema foreldrum og nánustu aðstandendum. Að öðru leyti eru þau aðeins hluti af tölu í skjali. Þetta eru ekki fáein börn. Samkvæmt gögnum frá Sameinuðu þjóðunum létust á síðasta ári tvær milljónir barna yngri en fimm ára. Við þyrftum að fimmfalda íbúafjölda Íslands til að ná þeirri tölu. Tvær milljónir. Viljandi og markvisst er vegið að stoðum alþjóðakerfisins sem byggt hefur verið upp frá lokum síðari heimsstyrjaldar og hefur hvílt á samvinnu og regluverki. Eftir áratugi stöðugra framfara er nú gert ráð fyrir að dauðsföll barna undir fimm ára aldri aukist áfram á þessu ári, líkt og í fyrra. Þetta er dapurlegur viðsnúningur. Frá 1990 til 2023 minnkaði barnadauði á heimsvísu um nær 60 prósent. Síðast þegar barnadauði jókst marktækt var á áttunda áratug síðustu aldar. Ástæðan fyrir þessari öfugþróun, að börn séu aftur farin að deyja í auknum mæli af orsökum sem við vitum hvernig má afstýra, er pólitísk. Auðugustu ríki heims draga saman í þróunarsamvinnu og í stuðningi við lýðheilsu. Niðurskurður bandarískra stjórnvalda á þessum sviðum er óhugnanlegur. Þróunarsamvinnustofnun Bandaríkjanna, USAID, var nánast lögð niður og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, fær ekkert fjármagn frá Bandaríkjunum frá og með 22. janúar síðastliðnum. En Bandaríkin eru ekki ein í þessum niðurskurði. Flest ríki G7 skera niður fjármagn til þróunarsamvinnu annað árið í röð, þar á meðal Kanada og Svíþjóð. Skýringin er í flestum tilvikum sú að nýta þurfi þessa fjármuni til að mæta auknum útgjöldum til öryggis- og varnarmála. Þróunarsamvinna er „auðveldi“ sparnaðarliðurinn, sá sem veldur minnstum pólitískum titringi heima fyrir. Engin hætta á að atkvæði glatist. Afleiðingarnar eru utan við sjónsviðið, eitthvert fólk í Langtíburtistan. Ísland er lítið ríki, en ekki áhrifalaust. Við höfum löngum talið okkur til þeirra sem leggja áherslu á mannréttindi, alþjóðlega samvinnu og stuðning við bláfátæk samfélög í þróunarríkjum. Það er því rík ástæða til að meta það sem vel er gert: íslensk stjórnvöld hafa ekki skorið niður fjármagn til þróunarsamvinnu, heldur aukið það lítilsháttar. Þróunarsamvinna er ekki góðverk. Hún er hluti af sameiginlegri ábyrgð í heimi þar sem ákvarðanir stjórnvalda efnuðu ríkjanna hafa bein áhrif á líf fátækra. Í þeim hópi eru meðal annars börn sem eiga framtíðina fyrir sér, en deyja í þögn. Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar