Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 22:08 Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Vísir/Sigurjón Tillaga um samstarf við atvinnulífið í málefnum leikskóla og daggæslu var felld í borgarstjórn í dag. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að bjóða þurfi upp á „hlaðborð lausna“ til að leysa leikskólavandann.
Tillaga Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem felst í að leita til forsvarsfólks atvinnulífsins til að aðstoða í málefnum leikskóla- og daggæslu var felld á fundi borgarstjórnar í dag. Hún lagði til að kannaður yrði vilji fyrirtækja í Reykjavík til að opna leikskóla- eða daggæsluúrræði á vinnustöðum fyrir börn starfsmanna. Það væri á herðum skóla- og frístundasviðs borgarinnar að útfæra með hvaða hætti mótframlögum vegna barna í daggæslu eða leikskólum á vinnustöðum foreldra verði háttað, og með hvaða hætti borgin gæti stutt við þá vinnustaði sem vilja byggja upp slík úrræði. „Leikskólavandinn kemur ekki bara niður á fjölskyldum í Reykjavík heldur líka vinnuveitendum sem gengur mörgum illa að endurheimta starfsfólk eftir fæðingarorlof,“ segir Hildur. Tillagan var felld með tólf atkvæðum samstarfsflokkanna, Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins, Vinstri grænna og Pírata gegn ellefu atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Viðreisnar. Þegar Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, var borgarstjóri stóð til að leyfa Alvotech að byggja þrjá leikskóla fyrir bæði börn starfsfólks og börn sem byggju í nágrenni við leikskólana. Þegar nýr meirihluti tók við sögðust þau ekki ætla að veita Alvotech leyfi til þess að byggja leikskólanna. Alvotech réðst í aðgerðinar í kjölfar þess að Arion banki kom á daggæslu fyrir börn starfsfólksins. „Við leysum ekki þennan leikskólavanda með einni töfralausn. Við þurfum að bjóða hlaðborð lausna svo hver fjölskylda geti valið það úrræði sem best hentar hverju sinni.“
Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Reykjavík Leikskólar Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira