Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 11:40 Ekki kemur fram í tilkynningu Vinnumálastofnunar hvort starfsfólkið starfaði við land- eða sjókvíaeldi. Myndin er úr safni. Vísir/Einar Alls var 84 starfsmönnum sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem tilkynnt var um til Vinnumálastofnunar í janúar. Hópuppsagnirnar voru báðar tengdar starfsemi á sviði fiskeldis og gert ráð fyrir að öllum verði boðið starf að nýju. Í síðustu viku bárust fréttir af því að fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic fish á Vestfjörðum ætli að ráðast í breytingar á kjörum starfsfólks í sjódeildum fyrirtækjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinnumálastofnun um hópuppsagnir í janúar 2026. „Alls bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í janúar 2026, þar sem 84 starfsmönnum var sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru á sviði fiskeldis og verður öllum boðið starf að nýju. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda apríl og maí 2026,“ segir í tilkynningu Vinnumálastofnunar, en lögum samkvæmt ber vinnuveitendum að upplýsa stofnunina um hópuppsagnir. Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri. Í síðasta mánuði á undan, desember 2025, bárust stofnuninni einnig tvær tilkynningar um hópuppsagnir þar sem alls 54 misstu vinnuna. Veistu meira um málið? Ef þú hefur upplýsingar um hópuppsagnir eða þau fyrirtæki sem réðust í uppsagnir getur þú sent okkur fréttaskot hérna. Uppfært klukkan 14:05 Í síðustu viku bárust fréttir af því að fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic fish á Vestfjörðum ætli að breyta kjörum starfsfólks í sjódeildum sínum. Yfirvinnulaun verði meðal annars lækkuð og að breytingarnar gætu haft áhrif á kjör tuga starfsmanna. Sjá einnig: Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Í lok síðustu viku sendi Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga frá sér yfirlýsingu þar sem félagið harmar ákvörðun stjórnenda Arnarlax og Arctic fish um að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og eigi að taka gildi þann 1. maí. Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga sagði í samtali við fréttastofu að það væri afar sérstakt af fiskeldisfyrirtækjum á svæðinu að ákveða að lækka laun þeirra starfsmanna sem vinni mikilvægustu og erfiðustu störfin að hans sögn, og gaf lítið fyrir þau rök að um leiðréttingu launa væri að ræða. Fréttin hefur verið uppfærð með vísan í fyrri fréttir af málinu. Vinnumarkaður Fiskeldi Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinnumálastofnun um hópuppsagnir í janúar 2026. „Alls bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í janúar 2026, þar sem 84 starfsmönnum var sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru á sviði fiskeldis og verður öllum boðið starf að nýju. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda apríl og maí 2026,“ segir í tilkynningu Vinnumálastofnunar, en lögum samkvæmt ber vinnuveitendum að upplýsa stofnunina um hópuppsagnir. Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri. Í síðasta mánuði á undan, desember 2025, bárust stofnuninni einnig tvær tilkynningar um hópuppsagnir þar sem alls 54 misstu vinnuna. Veistu meira um málið? Ef þú hefur upplýsingar um hópuppsagnir eða þau fyrirtæki sem réðust í uppsagnir getur þú sent okkur fréttaskot hérna. Uppfært klukkan 14:05 Í síðustu viku bárust fréttir af því að fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic fish á Vestfjörðum ætli að breyta kjörum starfsfólks í sjódeildum sínum. Yfirvinnulaun verði meðal annars lækkuð og að breytingarnar gætu haft áhrif á kjör tuga starfsmanna. Sjá einnig: Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Í lok síðustu viku sendi Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga frá sér yfirlýsingu þar sem félagið harmar ákvörðun stjórnenda Arnarlax og Arctic fish um að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og eigi að taka gildi þann 1. maí. Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga sagði í samtali við fréttastofu að það væri afar sérstakt af fiskeldisfyrirtækjum á svæðinu að ákveða að lækka laun þeirra starfsmanna sem vinni mikilvægustu og erfiðustu störfin að hans sögn, og gaf lítið fyrir þau rök að um leiðréttingu launa væri að ræða. Fréttin hefur verið uppfærð með vísan í fyrri fréttir af málinu.
Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.
Veistu meira um málið? Ef þú hefur upplýsingar um hópuppsagnir eða þau fyrirtæki sem réðust í uppsagnir getur þú sent okkur fréttaskot hérna.
Vinnumarkaður Fiskeldi Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira