Barnamenningarhús – menning, sköpun, tengsl og geðheilbrigðisforvarnir frá upphafi Ellen Calmon skrifar 4. febrúar 2026 12:30 Hvernig byggjum við borg sem raunverulega setur fólk í forgrunn? Fyrir mér liggur svarið í því hvernig við mætum börnum og fjölskyldum þeirra. Ekki aðeins með þjónustu, heldur með rými sem styrkir tengsl, samveru og öryggi – grunnstoðir vellíðanar og geðheilbrigðis. Þess vegna vil ég að komið verði á fót barnamenningarhúsi í Reykjavík, sem verði lifandi miðstöð menningar, sköpunar, samfélagslegrar þátttöku og geðheilbrigðisforvarna. Barnamenningarhús eru ekki hefðbundin söfn eða stofnanir. Þau eru opin, aðgengileg og inngildandi rými þar sem börn eru virkir þátttakendur – ekki aðeins áhorfendur. Á Norðurlöndunum hafa slík hús, oft nefnd Barnkulturhus eða Kulturhus för barn, fest sig í sessi sem lykilinnviðir í barnvænum borgum. Þar er lögð áhersla á rétt barna til menningar, leikjar og sköpunar, í samræmi við Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna. En gildi barnamenningarhúsa felst ekki aðeins í listum og menningu. Þau eru líka vettvangur fyrir tengslamyndun – milli barna, foreldra og samfélags. Rannsóknir sýna að sterk og jákvæð tengsl barna við foreldra og aðra umönnunaraðila eru ein helsta vernd gegn kvíða, vanlíðan og félagslegri einangrun. Þegar börn fá að skapa, leika og taka þátt með fjölskyldu sinni, í öruggu og styðjandi umhverfi, styrkist sjálfsmynd þeirra, tilfinningalæsi og félagsfærni. Slík rými eru því öflugt geðheilbrigðisforvarnarúrræði. Barnamenningarhús veita börnum raunverulegt rými til sköpunar. Þar er ekki aðeins boðið upp á skipulagða dagskrá, heldur einnig frjálsan leik og opnar smiðjur þar sem foreldrar, systkini og aðrir aðstandendur geta verið þátttakendur. Starfsemin er ýmist gjaldfrjáls eða verðlögð með það að markmiði að tryggja jöfn tækifæri til þátttöku. Lögð er rík áhersla á algilda hönnun, fjölbreytni og inngildingu, og unnið þvert á listgreinar á borð við tónlist, leiklist, myndlist, dans og sagnalist. Þar mætast börn á ólíkum aldri og með ólíkan bakgrunn – og mynda tengsl sem styrkja samfélagið í heild. Barnamenningarhús í Reykjavík gæti orðið fjölnota menningar- og samfélagsrými í hjarta borgarinnar. Þar mætti byggja upp samstarf við stofnanir á borð við Borgarleikhúsið, Sinfóníuhljómsveit Íslands og fleiri aðila. Sérstaklega mikilvægt væri að þar væri opið fjölskyldurými á ákveðnum tímum dags, til dæmis með starfsemi opins leikskóla. Í slíku rými gætu foreldrar og börn komið saman án mikilla kvaða, byggt upp tengslanet, dregið úr einangrun og fengið stuðning í foreldrahlutverkinu. Slíkt rými skiptir miklu máli fyrir foreldra í fæðingarorlofi, fjölskyldur með ungbörn, börn með ólíkar þarfir og fjölbreyttar fjölskyldugerðir. Fyrir börn með annan tungumála- eða menningarbakgrunn getur barnamenningarhús orðið menningarbrú inn í samfélagið – rými þar sem þau tilheyra, þar sem foreldrar þeirra hitta aðra foreldra og þar sem félagsleg tengsl styrkjast. Þetta er forvörn í sinni skýrustu mynd. Barnamenningarhús er því bæði menningarverkefni og mannréttinda- og velferðarverkefni. Í 31. grein Barnasáttmálans er kveðið á um rétt barna til leiks, tómstunda og þátttöku í menningar- og listalífi, og í 12. grein um rétt þeirra til að tjá skoðanir sínar og hafa áhrif á eigið umhverfi. Með barnamenningarhúsi er þessum réttindum ekki aðeins lýst heldur eru þau virkjuð í reynd. Mig hefur lengi dreymt um að barnamenningarhús verði að veruleika í Reykjavík. Ég hef oft horft til húsa eins og Iðnó sem mögulegs heimilis slíkrar starfsemi og sé þar tækifæri til að skapa hlýtt, opið og lifandi rými fyrir börn og fjölskyldur. Að koma á fót barnamenningarhúsi væri skýr yfirlýsing um framtíðarsýn borgarinnar: að börn skipta máli, að tengsl skipta máli og að geðheilbrigði er byggt upp með samfélagi. Höfundur er formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ellen Jacqueline Calmon Borgarstjórn Mest lesið Gini borgar ekki leiguna Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun Dýraskólinn: þegar stöðluð próf eru blekking jafnréttis Ásgeir Jónsson Skoðun Þegar landið logar Hrefna Sigurjónsdóttir Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir Skoðun Kapphlaupið um sumarnámskeiðin Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Heyrnin tengir okkur Karen Ósk Gylfadóttir Skoðun Týndu börnin Telma Sigtryggsdóttir Skoðun Kynjajafnrétti forsenda þróunar og framgangs Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Með sniglaslím í andlitinu Karl Pétur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Týndu börnin Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Heyrnin tengir okkur Karen Ósk Gylfadóttir skrifar Skoðun Dýraskólinn: þegar stöðluð próf eru blekking jafnréttis Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Heyrnarskimun er ekki kostnaður – hún er fjárfesting í framtíð barna Hildur Heimisdóttir,Kristbjörg Gunnarsdóttir,Ólafur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verndum börn gegn ofbeldi á netinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Gini borgar ekki leiguna Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Kynjajafnrétti forsenda þróunar og framgangs Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar landið logar Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kapphlaupið um sumarnámskeiðin Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað á unga fólkið að kjósa? Daníel Þröstur Pálsson skrifar Skoðun Með sniglaslím í andlitinu Karl Pétur Jónsson skrifar Skoðun Þegar Bítlakynslóðin verður gömul Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hagkvæmt húsnæði á hagkvæmum kjörum Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Úkraína - 24. febrúar 1956 og 2022 Erlingur Hansson skrifar Skoðun Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna Eygló Harðardóttir skrifar Skoðun Þar sem er reykur, þar er eldur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Sterkara Austurland – saman, ekki sitt í hvoru lagi Erlendur Magnús Jóhannsson skrifar Skoðun Latína er list mæt Arnar Freyr Sigurðsson skrifar Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells skrifar Skoðun Sannleikur óskast! Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Mun vinnumarkaðurinn ná að halda í við gervigreindina? Kristinn Bjarnason skrifar Skoðun Neyðarástand í málefnum aldraðra – hvar er forgangsröðunin? Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Um rektor tala ég ekki Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Þýska stjórnarskráin krefst loftslagsaðgerða af stjórnvöldum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Flugfarþegar í hrakningum Hafsteinn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt rafmagn á alþjóðlegum markaði Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Er uppruni orðinn að saknæmi? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Heyrnarskimun er ekki kostnaður – hún er fjárfesting í framtíð barna Hildur Heimisdóttir,Kristbjörg Gunnarsdóttir,Ólafur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson skrifar
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun