X - Orri Ragnar Sigurðsson skrifar 4. febrúar 2026 14:01 Ég hef fylgst með starfi Orra Björnssonar í mörg ár og hef haft þann heiður að vinna með honum í pólitískri starfsemi í Hafnarfirði. Orri hefur ákveðna eiginleika sem skipta sköpum þegar kemur að því að leiða, vinna með fólki og takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem fylgja því að sitja í sveitarstjórn og leiða flokk inn í kosningar. Fyrst kynntist ég Orra þegar ég var formaður Stefnis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, og það sem hefur einkennt feril hans síðan þá er samstillt einbeiting að málefnum sem skipta máli fyrir bæjarfélagið og Sjálfstæðisflokksins. Orri hefur alltaf borið hag flokksins fyrir brjósti, hvort sem það hefur verið í innra starfi, sem kjörinn fulltrúi eða sem stuðningsmaður og þátttakandi í málefnum sem skipta Hafnarfjörð og sveitarfélagið máli. Starf sveitarstjórnarfulltrúa krefst þess að einstaklingar geti unnið með fólki, hlustað á ólík sjónarmið og skapað sátt um lausnir sem styðja við samfélagið í heild. Það er ekki sjálfgefið að hafa þann hæfileika að ná sambandi við fólk úr ólíkum áttum en Orri hefur sýnt það að hann er bæði viðræðugóður og lausnamiðaður sem setur verkefnin og fólkið fremst. Í því starfi sem Orri hefur þegar sinnt hefur hann staðið vaktina af festu og byggt upp traust meðal þeirra sem hann vinnur með. Ég hef sjálfur upplifað hversu mikils virði það er að vinna með manni sem leggur sig fram um að ná samstöðu, finna skynsamlegar lausnir og halda fókus á þeim meginverkefnum sem liggja fyrir okkur. Slíkir eiginleikar skipta sköpum þegar kemur að því að leiða flokk og samfélag áfram með festu og framtíðarsýn. Þess vegna lýsi ég yfir mínum stuðningi við Orra Björnsson í 1. sæti listans í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði laugardaginn 7. febrúar. Ég hvet alla sjálfstæðismenn til að kjósa mann sem hefur það sem þarf – ekki aðeins færni og reynslu, heldur einnig vilja til að vinna með fólki og fyrir fólk. Orri hefur það sem þarf. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð og fyrrverandi formaður Stefnis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Sigurðsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Ég hef fylgst með starfi Orra Björnssonar í mörg ár og hef haft þann heiður að vinna með honum í pólitískri starfsemi í Hafnarfirði. Orri hefur ákveðna eiginleika sem skipta sköpum þegar kemur að því að leiða, vinna með fólki og takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem fylgja því að sitja í sveitarstjórn og leiða flokk inn í kosningar. Fyrst kynntist ég Orra þegar ég var formaður Stefnis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, og það sem hefur einkennt feril hans síðan þá er samstillt einbeiting að málefnum sem skipta máli fyrir bæjarfélagið og Sjálfstæðisflokksins. Orri hefur alltaf borið hag flokksins fyrir brjósti, hvort sem það hefur verið í innra starfi, sem kjörinn fulltrúi eða sem stuðningsmaður og þátttakandi í málefnum sem skipta Hafnarfjörð og sveitarfélagið máli. Starf sveitarstjórnarfulltrúa krefst þess að einstaklingar geti unnið með fólki, hlustað á ólík sjónarmið og skapað sátt um lausnir sem styðja við samfélagið í heild. Það er ekki sjálfgefið að hafa þann hæfileika að ná sambandi við fólk úr ólíkum áttum en Orri hefur sýnt það að hann er bæði viðræðugóður og lausnamiðaður sem setur verkefnin og fólkið fremst. Í því starfi sem Orri hefur þegar sinnt hefur hann staðið vaktina af festu og byggt upp traust meðal þeirra sem hann vinnur með. Ég hef sjálfur upplifað hversu mikils virði það er að vinna með manni sem leggur sig fram um að ná samstöðu, finna skynsamlegar lausnir og halda fókus á þeim meginverkefnum sem liggja fyrir okkur. Slíkir eiginleikar skipta sköpum þegar kemur að því að leiða flokk og samfélag áfram með festu og framtíðarsýn. Þess vegna lýsi ég yfir mínum stuðningi við Orra Björnsson í 1. sæti listans í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði laugardaginn 7. febrúar. Ég hvet alla sjálfstæðismenn til að kjósa mann sem hefur það sem þarf – ekki aðeins færni og reynslu, heldur einnig vilja til að vinna með fólki og fyrir fólk. Orri hefur það sem þarf. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð og fyrrverandi formaður Stefnis.
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar