Íslensk lög sniðin að þörfum norsku laxeldisrisanna Magnús Guðmundsson skrifar 4. febrúar 2026 17:01 VÁ félag um vernd fjarðar verður líklega að biðja þjóðina afsökunar á öllum ábendingum sínum til ríkisins um lagabrot vegna sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Starfsmenn innviðaráðuneytisins sitja alla vega sveittir við að breyta lögum eftir ábendingar okkar. Í ráðuneytinu er reynt og stefnt að því að tryggja öryggi þjóðarinnar en tekst alltaf að koma að sveigjanleika og undanþáguheimildum í lögin fyrir ráðherra vegna sjókvíaeldis. Öll lög eru sniðin að þörfum sjókvíaeldisins. Samráðsgátt 15.12.2025 Innviðaráðherra setti drög að breytingum á fjarskiptalögum í samráðsgátt. Þau áttu m.a. að tryggja öryggi fjarskiptastrengja og netöryggi þjóðarinnar. Lögin reyna að tryggja að bannað er að setja akkeri sjókvía og annars búnaðar inn á helgunarsvæði sæstrengja. Bannið fellur um sjálft sig. Lögin heimila ráðherra að veita undanþágu í einstaka tilfellum. Lögin eru greinilega gerð fyrir sjókvíaeldisfyrirtæki í meirihlutaeigu Norðmanna, sem keyptu sinn hlut með ákvæði um aukagreiðslu ef rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonna laxeldi fengist í Seyðisfirði. Samráðsgátt 23.01.2026 Innviðaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi S-15/2026 til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga sem fyrirhugað er að komi í stað laga um vitamál nr. 132/1999. Lög þessi gilda um leiðarmerki og öryggi siglinga á íslensku yfirráðasvæði. Ráðuneytið telur núgildandi lög um vitamál barn síns tíma og haldist ekki í hendur við breytingar í þjóðfélaginu má þar nefna sjókvíaeldi. Markmið laganna er að tryggja öruggar og greiðar siglingar við Íslandsstrendur með notkun vita og annarra leiðarmerkja. Markmið um öruggar siglingaleiðir er ekki tryggt í þessu frumvarpi, því þar á að festa í lög að mannvirki megi vera á tilteknu dýpi innan hvíts ljósgeira vita. Lögin benda í mótvægisaðgerðir, sem komu inn í skipulagsvinnuna korteri áður en strandsvæðaskipulagið var sent til ráðherra til yfirferðar og afgreiðslu, Upprifjun Skipulagsstofnun fékk skipstjóra með langa reynslu af siglingum inn og út Seyðisfjörð til að taka saman minnispunkta um siglingar í firðinum fyrir umræðuhóp um siglingar við gerð strandsvæðisskipulags. Skipstjórinn var einu sinni boðaður á fjarfund með svæðisráði. Þar komst hann ekki að til að ræða öryggi siglinga og ábendingar hans og aðvaranir um siglingaöryggi voru aldrei notaðar. VÁ gerði athugasemdir við siglingaöryggi í þröngri innsiglingu að samevrópskri höfn í Seyðisfirði, bæði hjá Skipulagsstofnun og Vegagerðinni. Vegagerðin brást við og fékk verkfræðistofu til að gera siglingaáhættumat í Seyðisfirði. Matið kom illa út fyrir sjókvíaeldið og gera þurfti bragarbót á 12 áhættuþáttum. Mörgum þeirra var ekki hægt að bregðast við til að koma sjókvíaeldi fyrir í Seyðisfirði. Matið fór beint í tætarann hjá Vegagerðinni. Innviðaráðherra skipaði nefnd til að koma með mótvægisaðgerðir vegna eldisstöðva í hvítum ljósgeirum vita. Nefndin var skipuð fjórum mönnum frá Skipulagsstofnun, Samgöngustofu og Vegagerð. Hún komst að þeirri undarlegu og ólögmætu niðurstöðu að sjókvíaeldisstöðvar mættu vera innan hvítra ljósgeira ef tóg akkerisfestinga væru komin niður á 15 – 20 m dýpi við mörk ljósgeirans. Starfsmenn þessara stofnana máttu vita að verið væri að fara á svig við lög, sem stofnanir þeirra eiga að framfylgja. Skv. lögum voru þessar stofnanir líka ráðgefandi fagaðilar við vinnslu strandsvæðaskipulags. Innviðaráðherra samþykkti strandsvæðaskipulag í mars 2023 þrátt fyrir að áhættumat siglinga lægi hvergi fyrir og þessi ólögmæta mótvægisaðgerð var tekin góð og gild til að tryggja öryggi sjófarenda vegna sjókvíaeldis í ljósgeirum vita. Innviðaráðherra gengur nú lengra og ætlar að festa þessa mótvægisaðgerð í lög, þrátt fyrir að hún samræmist ekki öðrum ákvæðum laganna. Vegagerðin, Samgöngustofa og Landhelgisgæslan gerðu fyrstu áhættumöt siglinga fyrir ytri hluta Ísafjarðardjúps haustið 2023. Þau tókust ekki betur en svo að eldissvæðin voru ýmist innan hvítra ljósgeira þriggja, tveggja eða eins geiravita. Rekstrarleyfi innan þeirra hafa verðið felld úr gildi af Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Vegagerðin samþykkti siglingaáhættumati í Patreksfirði, þar sem kröfur eru um að sjókvíaeldissvæði fari út fyrir hvítan ljósgeira. Stofnunin hefur ekki fylgt þeim kröfum eftir. Vegagerð og Samgöngustofa lögðu blessun sína yfir kolólöglegt áhættumat siglinga í Seyðisfirði, sem unnið var fyrir sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík. Siglingaáhættumatið brýtur á núgildandi vitalögum og alþjóðlegum lögum. Vá hvað þetta er galin upptalning og stjórnsýsla. VÁ ætlar ekki að biðja þjóðina afsökunar á ábendingum sínum vegna lagabrota, því þær áttu greinilega við rök að styðjast miðað við vinnu ráðuneyta við „lagfæringar“ á lögum. Ríkisstjórnin þarf að biðja þjóðina afsökunar á þjónkun sinni við sjókvíaeldið, og hvernig hún ætlar að skila landinu af sér til komandi kynslóða. VÁ biður hins vegar landsmenn, sem eru sammála okkur um að siglingaöryggi eigi að vera í forgangi, að senda inn umsögn í samráðsgátt https://island.is/samradsgatt/mal/4162 fyrir miðnætti 8. febrúar n.k. Hér er hugmynd að umsögn, sem má afrita og nota til senda inn. Umsögn í samráðsgátt mál nr. S-15/2026: Ég hvet ráðherra til að endurskoða drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Lögin heiti áfram „Lög um vitamál“ og eiga að tryggja skilyrðislaust siglingaöryggi í vitalögum og fella burt allar undanþáguheimilir Vegagerðarinnar fyrir sérhagsmunaaðila í nýju drögum, og standa skilyrðislaust við allar alþjóðlegar skuldbindingar í stað þess að stefna að því. Eins hvetjum við ráðherra til að fara að ráðum fagaðila. Formaður fagráðs um siglingamál segir vitana enn mikilvæga, sérstaklega innsiglingarvita í höfnum. Eins og ástandið er nú í heiminum í dag þá er ekki hægt að treysta á staðsetningartækin fullkomlega þannig að það er mjög mikilvægt að vitum sé vel við haldið og þeir virki rétt. Siglingaöryggið skal alltaf vera í fyrirrúmi, segir formaður fagráðs um siglingamál. Ég tek undir með formanninum og hvet ráðherra til að hafa öryggi sjófarenda í fyrirrúmi. Það getur ekki samrýmst stjórnsýslulögum að hafa undanþágur fyrir sérhagsmuni í vitalögunum umfram öryggi og almannahagsmuni. Höfundur er félagsmaður í VÁ-félagi í vernd fjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Guðmundsson Múlaþing Mest lesið Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun