Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Aron Guðmundsson skrifar 4. febrúar 2026 19:07 Sigvaldi Björn í leik með Kolstad Getty/Igor Kralj Íslendingalið Kolstad varð af mikilvægu stigi í toppbaráttu norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld þegar að liðið gerði jafntefli við Follo HK. Lokatölur 29-29.
Hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson var mættur í leikmannahóp Kolstad í kvöld eftir að hafa komið til móts við íslenska landsliðið fyrir úrslitahelgi Evrópumótsins í handbolta í Herning um síðastliðna helgi. Sigvaldi skoraði eitt mark í leik kvöldsins líkt og liðsfélagi hans Benedikt Gunnar Óskarsson en Benedikt átti einnig tvær stoðsendingar í leiknum. Þá var markvörðurinn Sigurjón Guðmundsson einnig á skýrslu í kvöld en kom ekki við sögu í leiknum. Jafnræði var með Kolstad og Follo í allt kvöld, leikar stóðu jafnir í hálfleik, 14-14, og það gerðu þeir líka í leikslok. 29-29. Kolstad náði þar með ekki að koma sér í toppsæti deildarinnar og er nú með jafnmörg stig og topplið Elverum sem á leik til góða á morgun á móti Nærbö og getur með sigri komið sér í tveggja stiga forystu á toppi norsku deildarinnar. Bras hefur verið hjá Kolstad utan vallar undanfarna mánuði en eftir að hafa spennt bogann hátt og ætlað sér stóra hluti í Evrópu hefur félagið neyðst til að draga saman seglin og farið fram á það við lykilleikmenn félagsins að þeir taki á sig launalækkun. Í samtali við Vísi í síðasta mánuði, fyrir keppni á EM, sagði Sigvaldi sín mál enn til skoðunar en að honum væri frjálst að skoða aðra kosti fyrst Kolstad geti ekki staðið við gerða samninga.
Norski handboltinn Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira