Aðgerðarleysi er ákvörðun, hún bitnar á börnunum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 08:32 Yfirlýsing yfir 60 leikskólastjóra Reykjavíkurborgar, sem birtist í gær, er þung og alvarleg áminning til borgaryfirvalda. Hún er ekki skrifuð í fljótfærni né í uppnámi heldur skrifuð af fagfólki sem hefur um árabil borið ábyrgð á einu mikilvægasta verkefni samfélagsins: velferð og menntun ungra barna. Þegar slíkur hópur lýsir yfir vaxandi efasemdum um hvort borgin ætli sér yfir höfuð að axla ábyrgð, þá ber að hlusta. Leikskólastjórar benda á það sem margir hafa lengi séð, að skortur sé á raunverulegum skilningi á nauðsyn þess að bæta starfsumhverfi í leikskólum borgarinnar. Þau orða það skýrt: „Okkur verður sífellt ljósara að skortur er á raunverulegum skilningi á nauðsyn þess að bæta starfsumhverfi í leikskólum Reykjavíkurborgar. Þær umbætur eru óaðskiljanleg forsenda þess að tryggja börnum faglegt, vandað og ekki síður öruggt námsumhverfi.“ Þetta er kjarni málsins. Starfsaðstæður leikskólastarfsfólks eru ekki sérhagsmunamál starfsstéttar heldur bein forsenda fyrir öryggi, stöðugleika og gæðum í leikskólastarfi. Starfi sem er bein forsenda þess að samfélagið okkar fúnkeri. Þegar aðgerðir dragast og lausnir eru sífellt settar í nefndir, greiningar og framtíðaráform, bitnar það fyrst og fremst á börnunum. Það sem gerir stöðuna enn alvarlegri er að þetta er ekki óleysanlegt vandamál. Leikskólastjórar benda sjálfir á að þau hafi horft upp á hæft og reynslumikið fagfólk yfirgefa Reykjavík til annarra sveitarfélaga, sveitarfélaga sem hafa brugðist hraðar við og af meiri festu við sömu áskoranir. Þetta sýnir að vandinn snýst ekki um að „ekki sé hægt að gera neitt“. Hann snýst um pólitíska forgangsröðun. Borgaryfirvöld hafa dregið lappirnar, meðal annars af ótta við að raska jafnréttissjónarmiðum eða gera breytingar sem kalla á raunverulegt fjármagn og pólitískt þor. En jafnrétti næst ekki með aðgerðaleysi. Það næst með því að bæta raunverulegar aðstæður í þeim störfum sem samfélagið byggir á, störfum sem eru að stórum hluta unnin af konum. Reykjavíkurborg getur ekki unað við að vera eftirá í þessum málum. Hún getur ekki sætt sig við að missa fagfólk vegna þess að hún þorir ekki að taka skref sem aðrir hafa þegar stigið. Og hún getur ekki talað um metnað í menntamálum á sama tíma og hún bregst leikskólastarfinu, fyrsta skólastigi barnanna. Nú er komið að borgaryfirvöldum að standa í lappirnar. Að sýna í verki, ekki aðeins í orði, að börn og starfsfólk leikskóla séu sett í forgang. Yfirlýsing leikskólastjóra er ekki árás, hún er ákall um ábyrgð. Það ákall ber að taka alvarlega, og það strax. Höfundur er uppeldisfræðingur og býður sig fram á lista Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira