Handbolti

Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga

Sindri Sverrisson skrifar
Dánjal Ragnarsson skoraði fjögur mörk í kvöld og Fram hélt Haukum á toppnum.
Dánjal Ragnarsson skoraði fjögur mörk í kvöld og Fram hélt Haukum á toppnum. vísir/Vilhelm

Meistarar Fram hófu leik af miklum krafti eftir EM-hléið í Olís-deild karla í handbolta. Þeir stöðvuðu sigurgöngu Aftureldingar og komu um leið í veg fyrir að Mosfellingar kæmust á topp deildarinnar.

Haukar tróna nú á toppnum í æsispennandi titilbaráttu en þeir unnu Val í kvöld og eru liðin jöfn að stigum en Haukar með betri innbyrðis úrslit. Afturelding, sem hafði unnið fjóra síðustu leiki fyrir hléið, er svo aðeins stigi þar á eftir.

Framarar, sem unnu Aftureldingu 30-26 í kvöld, eru hins vegar aðeins í 7. sæti en nú með 18 stig, sex stigum frá toppliðunum eftir 16 umferðir af 22.

Fram náði snemma frumkvæðinu í kvöld og var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16-12. Afturelding minnkaði hins vegar fljótt muninn í seinni hálfleik, niður í eitt mark, en eftir að staðan hafði verið 19-18 áttu Framarar frábæran kafla og komust í 28-20, þegar tíu mínútur voru eftir. Eftir það var aldrei spurning hvernig færi og niðurstaðan að lokum fjögurra marka sigur heimamanna.

Breki Hrafn Árnason átti flott kvöld í marki Framara og varði 14 skot, með 35% markvörslu, samkvæmt HB Statz. Eiður Rafn Valsson var markahæstur þeirra með sex mörk og Erlendur Guðmundsson skoraði fimm.

Hjá Aftureldingu var Árni Bragi Eyjólfsson með sex mörk og Ævar Smári Gunnarsson fimm. Sigurjón Bragi Atlason varði sex skot af tuttugu, eða 30%, og Einar Baldvin Baldvinsson var með fjögur varin skot af nítján, eða 21,1%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×