Afgerandi og vaxandi ánægja íbúa Hveragerðis Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 16:33 Það er fagnaðarefni að í nýfengnum niðurstöðum árlegrar þjónustukönnunar Gallup fyrir sveitarfélögin má merkja aukna ánægju íbúa Hveragerðis í allflestum þjónustuflokkum ásamt því að heilt yfir er afgerandi ánægja með Hveragerði sem búsetukost, sem fer jafnframt vaxandi. Þetta gefur okkur skýra vísbendingu um að Hveragerðisbær sé að feta sig rétta leið í að gera þjónustu á vegum bæjarins enn betri. Hástökk í ánægju með menntastofnanir í Hveragerði Það er sérstaklega gleðilegt að sjá að stærsta stökkið upp á við í ánægju íbúa gagnvart þjónustu Hveragerðisbæjar er með afgerandi hætti í grunn- og leikskólum bæjarins, en ánægja með menntastofnanir bæjarins mælist framúrskarandi í samanburði við önnur sveitarfélög. Skipar Hveragerði sér þar meðal þeirra sveitarfélaga þar sem íbúar eru hvað ánægðastir í þessu tilliti sem er mikið fagnaðarefni. Það er gleðiefni að sjá með þessu vaxandi jákvæð áhrif ríkra áherslna meirihluta Okkar Hveragerðis og Framsóknar á framúrskarandi þjónustu við hæfi fjölbreyttrar flóru barna með mismunandi þarfir og styrkleika. Jafnframt má um úrbætur á þjónustu menntastofnana Hveragerðis undanfarin misseri nefna tæmingu biðlista með opnun nýrra leikskóladeilda við Óskaland ásamt opnun nýjasta áfangans í uppbyggingu húsnæðis Grunnskólans í Hveragerði, veitingu frírra skólamáltíða í grunnskólanum ásamt um 70% lækkun leikskólagjalda. Allt skilar þetta sér í bættri þjónustu til íbúa - með gæðin í fyrirrúmi. Framúrskarandi ánægja með gæði umhverfis í Hveragerði Hveragerði hefur ávallt búið að ýmsum styrkleikum í þjónustu sinni og umhverfi. Íbúar hafa í því tilliti ekki síst notið góðs af einkar fallegri og einstakri náttúru í bæjarfélaginu. Það er því kannski ekki að undra að niðurstöður könnunarinnar eru ekki síður afgerandi jákvæðar hvað varðar ánægju íbúa með gæði umhverfisins í nálægð við heimili þeirra í Hveragerði. Ánægja íbúa er þar hækkandi á milli ára, er nú í raun í hæstu hæðum og markar Hveragerði sér þar stöðu í fremstu röð sveitarfélaga með framúrskarandi ánægju íbúa. Gæðin allt um kring í daglegu umhverfi eru íbúum Hveragerðis afar mikilvæg. Veigamiklir þættir í því tilliti eru nálægð við ósnerta og einstaka náttúru, aðgengi að fallegum gönguleiðum og ríkum tækifærum til útivistar ásamt góðri umhirðu bæjarfélagsins. Á kjörtímabilinu hefur meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar í bæjarstjórn unnið statt og stöðugt að margvíslegum úrbótum og viðhaldi á þeim útivistar- og leiksvæðum sem fyrir eru í bæjarfélaginu í takt við áherslur á fjölskylduvænt umhverfi ásamt uppbyggingu nýrra slíkra svæða. Lagt er mikið kapp á að draga fram þau einstöku gæði sem finna má í Hveragerði til undirstrikunar á því að hér í fallegu umhverfi bæjarins eru rík tækifæri til samveru fjölskyldunnar, bæði í ósnortinni náttúru og á skipulögðum útivistar- og leiksvæðum. Slík gæði eru ekki auðfundin þó víða sé leitað. Á komandi árum bíður Hvergerðinga spennandi verkefni sem felst í nánari útfærslu og uppbyggingu útivistarsvæðis undir Hamrinum - sem er sannkölluð paradís með ríkum tækifærum til útivistar, hreyfingar og ýmissrar tómstundaiðkunar. Það má með sanni segja að löngu er orðið tímabært að skapa svæðinu undir Hamrinum umgjörð sem sæmir þessari perlu bæjarfélagsins. Bylting í uppbyggingu íþróttamannvirkja Ánægja með aðstöðu til íþróttaiðkunar er jafnframt rísandi á milli ára, en nú standa yfir framkvæmdir við nýjan heilsárs gervigrasvöll, með einstöku gufukeyrðu snjóbræðslukerfi. Ráðgert er að taka völlinn í gagnið snemma í vor. Þá standa einnig yfir framkvæmdir við glæsilegt nýtt íþróttahús með sérstökum fimleikasal. Þessi uppbygging á eftir að skila bænum íþróttaaðstöðu í fremstu röð. Áframhaldandi samtal um enn gæðaríkari þjónustu Í þjónustu Hveragerðisbæjar við íbúa bæjarins fer fram afar fjölbreytt starf þar sem áherslan er á hvernig best sé hægt að mæta íbúum og þörfum þeirra á mismunandi og fjölbreyttum forsendum hvers og eins. Hér er aðeins tæpt á nokkrum þáttum þjónustu bæjarins, enda af nægu að taka í víðtækri starfsemi bæjarins, sem öll fer fram í þágu þeirra sem hér búa og mynda það samfélag sem starfsemi bæjarfélagsins hverfist um. Með framúrskarandi þjónustu við íbúa grundvöllum við blómlegt samfélag eins og við búum að í Hveragerði, þar sem einstaklingar fá að blómstra á eigin forsendum. Það er nefnilega staðreynd að bæjarfélagið hefur í grunninn þann eina tilgang að þjónusta fólkið sem bærinn okkar samanstendur af svo hér sé hægt að lifa í gæðaríku og góðu samfélagi og umhverfi. Okkar Hveragerði hlakkar til áframhaldandi samtals við íbúa um hvernig bæta má enn frekar þjónustu Hveragerðisbæjar þvert á öll málefnasvið - í viðleitni til að skapa hér enn gæðaríkara samfélag þar sem framúrskarandi þjónusta við íbúa bæjarins á öllum þjónustusviðum er í forgrunni. Höfundur er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis og varaformaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Sveitarstjórnarmál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar