Hin göfuga mismunun Ingólfur Sverrisson skrifar 8. febrúar 2026 14:32 „Þessi samningur kemur til með að færa okkur ósjálfstæði, atvinnuleysi, fátækt og auðnuleysi.” Þessi spámannlegu orð komu frá einum góðum Framsóknarþingmanni í janúar árið 1993 þegar hann talaði á Alþingi gegn samþykkt EES-samningsins. Aðrir Frammarar, og raunar fleiri, bættu við að Íslendingar myndu að auki missa allar veiðiheimildir við landið og barátta okkar fyrir fiskveiðilandhelginni færi veg allrar veraldar. Hér myndu renna upp móðuharðindi af mannavöldum og auðn blasa við ef Alþingi samþykkti umræddan samning. Þá voru stóru orðin ekki spöruð og einlægt vitnað í að við myndum í framhjáhlaupinu glata sjálfstæðinu, fullveldið væri fyrir bí og atvinnuleysi yrði skelfilegt. En hvað? - reynslan varð allt önnur. Eftir samþykkt EES-samningsins tók við eitthvert mesta framfaraskeið í sögu þjóðarinnar, ekkert auðnuleysi, allar fiskveiðiheimildir enn á hendi þjóðarinnar og spár um víðtækt atvinnuleysi blábiljur einar. Nú er þetta ágæta fólk aftur að klappa sama steininn af töluverðum ákafa og spáir illu fyrir landi og þjóð ef við svo mikið sem ræðum að ganga í ESB og gætum þá nýtt evruna fyrir alla en ekki bara suma landa okkar eins og fyrirkomulagið er í dag. Sá frumstæði háttur veldur meiri mismunun meðal þegnanna en dæmi eru um meðal siðaðra þjóða. Staðreyndin er sú, að í þessu örsmáa hagkerfi eru notaðir fjórir gjaldmiðlar: krónan, evran, dollarinn og verðtryggða krónan. Ekki svo vel að fólkið í landinu geti valið á milli, ónei. Aðeins útvaldir eru í færum til að koma sér undan þessu þrúgandi krónuhagkerfi en hinir neyðast til að bera allar birgðar sem valdstjórninni þóknast að leggja á hluta þjóðarinnar til að reyna að halda aftur af verðbólgu hvers tíma. Við hin skuldlausu og þeir sem nota alþjóða gjaldmiðla sleppa. Fórnarlömbin eru fyrst og fremst unga fólkið, sem er að koma yfir sig þaki og minni og meðalstór fyrirtæki. Jafnvel heilu stjórnmálaflokkarnir mæla með þessu óláns fyrirkomulagi og telja að það sé grunvöllur að sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi. Þegar ástandið er komið á þetta frumstæða stig lætur nærri að það sé meira í ætt við heilög trúarbrögð sem sem hafin eru yfir öll almenn rök og gefi frat í jafna stöðu allra landsmanna. Af þeim sökum sé ekki viðlit annað en að leggja birgðarnar á hluta þjóðarinnar á meðan hinir, sem nýta alþjóðagjaldmiðla, sleppa og hlæja góðlátlega að þjáningum unga fólksins og þeirra sem eru neydd til að reka fyrirtæki í krónuhagkerfinu. Þetta sé hin bjarta framtíð og heilu stjórnmálaflokkarnir mæla hiklaust með slíkri mismunun til framtíðar án þess að blikna og kæra sig kollótta um hlutskipti þeirra sem lokuð eru inni í krónuhagkerfinu með þrúgandi afleiðingum svo ekki sé nú talað um ósanngirnina sem því fylgir. Hún virðist eins og forsenda þess að þjóðin geti kallast fullvalda, eins ruglað og það er. Ein hættan af því að taka ekki að fullu þátt í alþjóðasamstarfi sem fullvalda þjóð, eins og við gerum að hluta til, er sú að sitja uppi með stjórnvöld sem hafa hvorki áhuga á raunverulegu lýðræði og enn síður á frelsi þegnanna. Vilja í raun aðeins treysta völd sín og áhrif eins og við Íslendingar höfum dapra reynslu af enda minnug þess að íslenskir embættismenn dæmdu landa sína oft til refsinga langt umfram tilefni og mun strangar en aðrar þjóðir tíðkuðu. Sem betur fer hefur þátttaka okkar í alþjóðastarfi breytt miklu í þessum efnum og er frægt dæmið þegar Jón Kristinsson rakari á Akureyri breytti rannsóknar- og dómskerfi landsins með því að áfrýja til Evrópu þeirri ósvinnu að sami aðili geti bæði rannsakað mál og dæmt. Þá þurfti útlendinga til að taka til hendi og tryggja lýðræði og fullveldi gagnvart hinum almenna borgara. Allt í andstöðu við innlenda lögfræðingastóðið sem þráaðist við á öllum dómstigum hér innanlands en varð svo að lúta í gras þegar Mannréttindadómstóll Evrópu tók af skarið. Sannleikurinn er sá að réttlætið hefur einlægt komið að utan í andstöðu við íslenska embættismenn. Því er ekki seinna vænna en að komast að fullu við ESB-borðið, taka þar þátt í ákvörðunum sem varða okkur og láta að okkur kveða ef svo ber undir. Allt annað er minnimáttarkennd og sæmir ekki frjálsri og fullvalda þjóð sem tekur virkan þátt í alþjóða samstarfi með reisn en vill ekki hornkerling heita. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Evrópusambandið EES-samningurinn Mest lesið Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. Skoðun Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. skrifar Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Vindorkan – ný fjármálabóla í ríkjum ESB? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Fyrst upplýsingar og stöðugleiki, svo má kjósa Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Króatar og ávextir ESB-aðildar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þegar hlutverkin deyja og sjálfið vaknar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Styrkur í fjárfestingu í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum er ekki háð Evrópusambandsaðild Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fólkið fær að ráða för Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson skrifar Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar
Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar