Forsetinn telur íþróttafólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu Aron Guðmundsson skrifar 10. febrúar 2026 07:02 Hólmfríður Dóra var ekki valin í landsliðshóp Íslands sökum meiðsla þrátt fyrir að hún treysti sér til þátttöku á Vetrarólympíuleikunum. Lindey Vonn sleit krossband viku fyrir leikana en keppti í gær. Vísir/Samsett Forseti Alþjóða skíða- og snjóbrettasambandsins er á því að ákvörðun um þátttöku á mótum eins og Vetrarólympíuleikunum, þegar meiðsli hafi gert vart um sig í aðdraganda móts, eigi að liggja hjá íþróttafólkinu sjálfu. Mikil umræða hefur sprottið upp eftir mál Lindsey Vonn sem einnig er hægt að tengja við mál skíðakonunnar Hólmfríðar Dóru Friðgeirsdóttur hér heima.
Eftir slysið hræðilega í brautinni í Cortina á sunnudaginn síðastliðinn, þar sem Vonn fótbrotnaði, hafa sprottið upp spurningar og umræður á þá leið hvort einhver hefði átt að stíga inn í og meina Vonn að taka þátt á Vetrarólympíuleikunum hafandi það í huga að aðeins um vika hafði liðið frá því hún sleit krossband í vinstra hné. Sumir vilja meina að þau meiðsli hafi orðið til þess að Vonn hafi síðan meiðst í brautinni á sunnudaginn en liðsfélagi hennar Keely Cashman, segir það af og frá og í færslu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi sagði Vonn það heldur ekki standast skoðun. Hún hafi einfaldlega verið of innarlega á sinni keppnislínu í brautinni, fimm tommum of innarlega til að vera nákvæm. Nú þegar hafa komið upp nokkur dæmi í tengslum við yfirstandandi Vetrarólympíuleika og meiðsli íþróttafólks. Hvar ákvörðunin varðandi þátttöku íþróttafólks sem glímir við meiðsli eigi að liggja. Umræðan hefur orðið háværari eftir meiðsli Vonn en fyrir hafði norska skíðasambandið til að mynda tekið fyrir það að hin 26 ára gamla Marte Monsen tæki þátt á leikunum eftir meiðsli sem hún hlaut á móti skömmu fyrir leikana. Hólmfríður fékk ekki að segja af eða á Þá er skemmst að minnast á mál er tengist íslensku skíðakonunni Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur sem braut bein í sköflungi í byrjun desember á síðasta ári og gekkst undir aðgerð. Hólmfríður treysti sér til þess að keppa á Vetrarólympíuleikunum en Skíðasamband Íslands valdi hana ekki í landsliðshópinn og var ákvörðunin sögð tekin með hennar langtíma hagsmuni að leiðarljósi. „Ég verð bara að vera ósammála því og segja að ég ein sé best til þess fallin að meta mína langtíma hagsmuni.“ sagði Hólmfríður í samtali við Vísi á sínum tíma en formaður Skíðasambandsins, Gísli Reynisson, sagði Hólmfríði í afneitun um alvarleika eigin meiðsla. Allir meiddir Alþjóða skíða- og snjóbrettasambandið (FIS) er sjálft ekki með eftirlit er varðar meiðslastöðu þátttakenda á Vetrarólympíuleikunum og er forseti sambandsins, Johan Eliasch, á því að íþróttafólkið sjálft sé best til þess fallið að taka ákvörðun um eigin þátttöku. Johan Eliasch, forseti FISVísir/Getty „Í tilfelli Vonn þekkir hún sín meiðsli betur en nokkur annar. Ef þú horfir á íþróttafólkið hér á leikunum þá er hver og einn keppandi að glíma við einhvers konar smávægileg meiðsli,“ sagði Eliasch í samtali við AP fréttaveituna. Vonn, líkt og Hólmfríður Dóra, hafði ráðfært sig við sitt lækna- og sjúkrateymi sem og þjálfara áður en hún ákvað að keyra á þátttöku á Vetrarólympíuleikunum.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Körfubolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Handbolti Sakaði Luke Littler um dónaskap Sport Stóra boxkvöldinu í Gamla bíói slegið á frest Sport Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Íslenski boltinn Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Íslenski boltinn Mickelson neyðist til að sleppa Masters Golf Sonur Schwarzenegger vann fyrstu keppnina sína Sport Fleiri fréttir Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Breiðablik - FH | Önnur tilraun til að krýna meistara meistaranna Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Draumabyrjun hjá Lindu Líf í atvinnumennskunni Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Fyrrverandi markakóngur HM lagður inn á sjúkrahús Segir að frændi sinn sé algjör hálfviti inni á vellinum „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Sakaði Luke Littler um dónaskap Sonur Schwarzenegger vann fyrstu keppnina sína Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Ólympíugullverðlaunahafi í átján mánaða bann Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Dagskráin í dag: Úrslitakeppnin í körfu og hvaða lið ætla í ensku úrvalsdeildina? Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Mickelson neyðist til að sleppa Masters Stóra boxkvöldinu í Gamla bíói slegið á frest „Fallegt að sjá liðið stíga saman upp og taka skref áfram“ Mæta meisturum Arsenal eftir sigur í framlengingu Uppgjörið:Valur - Keflavík 75-78| Keflavík stelur heimavellinum í fyrsta leik Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm „Allt í einu var munurinn orðinn alltof mikill“ Ásgeir Karl og Tristan Máni unnu brons á EM Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Íslenskur sigurvegari á fyrstu leiktíð Evrópubikarsins Naumt forskot hjá Janusi og félögum Niðurlægðu Real og mæta Glódísi Sjá meira