Þórður Már til Faxaflóahafna Árni Sæberg skrifar 10. febrúar 2026 14:10 Þórður Már hefur verið ráðinn skipulagsfulltrúi. Faxaflóahafnir Þórður Már Sigfússon hefur verið ráðinn skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna og hefur þegar hafið störf.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Þórður komi til Faxaflóahafna frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, þar sem hann hafi starfað sem verkefnistjóri deiliskipulagsáætlana síðastliðin fjögur ár. Þar áður hafi hann starfað sem skipulagsfulltrúi í samlagi fimm sveitarfélaga á Vestfjörðum; Dalabyggð, Strandabyggð, Reykhólahreppi, Kaldrananeshreppi og Árneshreppi. „Ég hef tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á mínum ferli í skipulagsmálum. Í starfi mínu hjá Reykjavíkurborg sá ég frá fyrstu hendi hversu lykilhlutverki eining á borð við Faxaflóahafnir gegnir, ekki aðeins í daglegri starfsemi borgarinnar heldur einnig með tilliti til framtíðarþróunar hennar. Hlutverk hafnanna nær langt út fyrir borgarmörkin, enda er starfsemi Faxaflóahafna á landsbyggðinni jafnframt mikilvægur þáttur í byggðaþróun, atvinnulífi og samspili skipulags, samgangna og hafnarstarfsemi,“ er haft eftir Þórði Már. Hann sé með BS-gráðu í landfræði og meistaragráðu í skipulagsfræði. Þá segir að Faxaflóahafnir reki umfangsmestu hafnir landsins á starfsvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi. Félagið tengi stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum. Rúmlega 80 manns starfi hjá fyrirtækinu, sem leggi áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og sé í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.
Vistaskipti Hafnarmál Skipulag Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira