Takk læknar! Siv Friðleifsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 17:32 Lára G. Sigurðardóttir læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, er kona að mínu skapi. Hún hefur skrifað nokkrar flottar greinar um afleiðingar óhóflegrar áfengisneyslu og áfengisstefnu Íslands upp á síðkastið hér í skoðanagreinum. Það hafa einnig Valgerður Rúnarsdóttir, fíknlæknir, Sigurdís Haraldsdóttir, krabbameinslæknir og Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir, gert. Fleiri læknar hafa nýlega tekið til máls opinberlega í þessari umræðu s.s. Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og Karl Andersen, hjartalæknir. Þá stóð Læknafélag Ísland fyrir opnu málþingi fyrir almenning um normalíseringu áfengis í Hörpunn nýlega í tengslum við Læknadaga og var húsfyllir. Takk læknar, fyrir að taka þátt í umræðunni um forvarnir og lýðheilsu. Einn læknirinn enn, sjálfur heilbrigiðsráðherra Alma Möller, skrifaði stórgóða skoðanagrein Heilsa og líðan barnanna okkar þann 8. febrúar sl. og lýsti þar að við stöndum frammi fyrir fjölda áskorana er varða lýðheilsu barna og ungmenna, s.s. auknu aðgengi að áfengi og vímuefnum. Hún undirstrikaði að “Þá þarf áfram að vinna gegn auknu aðgengi að áfengi.” Góð tímasetning á góðri grein hjá ráðherra. Takk Lára! Takk Lára, fyrir að láta ekki fulltrúa áfengisiðnaðarins, sem vilja selja sem mest og nú vega hart að þér á síðum fjölmiðla, þagga niður í þér. Skoðanagreinarnar Má bjóða þér meiri forræðishyggju, Lára? þann 8. febrúar og Bréf til Láru þann 10. febrúar þar sem þú og aðrir læknar eruð rökkuð niður dæma sig eiginlega sjálfar. Vonandi lesa sem flestir þær, bæði læknar og aðrir. Í þeim greinum er vegið hart að læknum, heilbrigðisráðherra og OECD svo einhverjir séu nefndir samanber þessar tvær tilvitnanir. Sú fyrri “Það er verulegt áhyggjuefni að sjá sprenglært fólk, sem kennir sig við gagnreynda læknisfræði, láta tilfinningar sínar hlaupa með sig í gönur þegar kemur að þessum málaflokki. Ég hvet lækna til að halda sig við það sem þeir kunna best – að sinna sjúklingum – en eftirláta öðrum að skipuleggja smásölu í landinu.” og sú seinni “Læknarnir endurflytja málflutning heilbrigðisráðherra og OECD um að áfengisneysla kosti skattborgara „ríflega 100 milljarða króna árlega“og að sá kostnaður „aukist í takt við aukna neyslu“. Þessi bókhaldsbrella er þvættingur og lýsir yfirgripsmikilli vanþekkingu.” Kolin hitna Nú hitnar í kolunum. Tvær skýringar eru nærtækar á þeim hita. Önnur er sú að nú er umsagnarferli, um drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035, opið til umsagnar í samráðsgátt. Hin er söluaðilum meira áhyggjuefni, en hún er sú að aðalmeðferð í máli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn netsöluaðila fer fram 5. mars nk.kl.9:30-14:00 í héraðsdómi Reykjaness. Dómsdagur nálgast því óðum. Gera má ráð fyrir að mál þetta fari alla leið til hæstaréttar því mikið er undir. Ef lögreglan vinnur málið að lokum þarf að taka fyrir netsöluna á áfengi eins og hún er framkvæmd á Íslandi. Henni væri lokað. Ef lögreglan hinsvegar tapar málinu að lokum þarf Alþingi að ákveða hvort skýra eigi lögin og viðhalda gildandi stefnu sem byggir á lýðheilsusjónarmiðum, eða kúvenda stefnunni og heimila sölu áfengis í matvöruverslunum. Forvarnarsamtök og fjöldi heilbrigðisstétta standa saman Forvarnarsamtök og fjölmargar heilbrigðisstéttir hafa sent stjórnvöldum skýr skilaboð um framangreint. Í þessum hópi eru m.a. Læknafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag lýðheilsufræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Þroskaþjálfafélag Íslands, Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, SÁÁ, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum. Heilbrigðisstéttir og forvarnarsamtök hafa hvatt stjórnvöld til að efla lýðheilsu og spara fjármagn sem annars færi í að verjast afleiðingum óhóflegrar áfengisneyslu. Þann 26. ágúst 2024 var send Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis. Í janúar 2025 var stjórnvöldum sent sparnaðarráðið Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnasamtaka ofl. í samráðsgátt 21. janúar 2025. Vonandi hlustar Alþingi og önnur stjórnvöld á heilbrigðisstéttir og forvarnarsamtök bæði þegar stefnan í áfengis- og vímuvörnum er mótuð og henni framfylgt. Höfundur er félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Siv Friðleifsdóttir Áfengi Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar