Leikskólamál í Reykjavík – staðreyndir og mögulegar lausnir Baldur Borgþórsson, Hlynur Áskelsson og Sigfús Aðalsteinsson skrifa 10. febrúar 2026 18:00 Börnin eru framtíðin, Leikskólamál í Reykjavík eru í alvarlegum vanda. Vandinn er ekki tímabundinn heldur kerfisbundinn og hefur verið staðfestur ítrekað í gögnum frá Ríkisendurskoðun, Hagstofu Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hvað er að? Skortur á menntuðum leikskólakennurum er eitt stærsta vandamálið. Í Reykjavík er hlutfall menntaðs starfsfólks víða langt undir þeim markmiðum sem sett eru í lögum. Þetta leiðir til mikils álags, veikindaforfalla og lokana deilda. Samkvæmt gögnum Hagstofu er stór hluti starfsfólks í leikskólum án kennaramenntunar og er þar um að kenna launum miðað við námskröfur, styttingu vinnuvikunnar án skilnings rekstraraðila og fjárskorts. Það er því rekstrarform borgarinnar sem ýtir undir manneklu. Laun, vaktakerfi og starfsumhverfi standast illa samanburð við aðra opinbera vinnustaði. Afleiðingin er hröð starfsmannavelta og stutt stopp ákveðins kjarna í starfi. Stjórnsýslan er of miðstýrð. Leikskólastjórar hafa takmarkað sjálfstæði yfir ráðningum, skipulagi og daglegum rekstri. Þetta dregur úr faglegri ábyrgð og hægir á lausnum. Foreldrar bera afleiðingarnar. Skertir opnunartímar, sameining deilda og lokanir með skömmum fyrirvara hafa bein áhrif á atvinnuþátttöku og öryggi fjölskyldna. Þetta er viðurkennt vandamál í gögnum Reykjavíkurborgar. Hver er ekki orsökin? Vandinn stafar ekki fyrst og fremst af fjölgun barna, ekki af ófyrirséðum aðstæðum eða tekjuskorti borgarinnar. Hann á rætur í skipulagi, forgangsröðun og ábyrgðarleysi í málefninu sjálfu, rekstraraðilans, stjórnendum borgarinnar. Því er gott að horfa til einkarekna leikskóla sem fæstir standa í slíkum vanda. Hver er lausnin? Leikskólinn þarf að verða raunverulegt fyrsta skólastig með skýrri sameiginlegri ábyrgð ríkis og sveitarfélaga. Starfsumhverfi og kjör þurfa að endurspegla það hlutverk. Leikskólar þurfa meira sjálfstæði í rekstri. Stjórnendur eiga að hafa raunverulegt vald yfir ráðningum, vaktakerfum og nýtingu fjármagns. Meiri ábyrgð skapar meira aðhald og skilning á rekstri leikskólans. Minnka þarf yfirbyggingu og afskipti ófaglegra aðila sem skipa sig í stjórnir og ráð málaflokksins. Nýta þarf einkarekstur og sjálfstæða aðila með skýrum reglum og eftirliti. Reynslan úr öðrum sveitarfélögum sýnir meiri stöðugleika þar sem slíkt samstarf er fyrir hendi. Að lokum þarf að tala skýrt við foreldra. Loforð sem standast ekki grafa undan trausti. Heiðarleg þjónustuviðmið og markviss umbótaleið er lausn til framtíðar. Loforð og plástrar heyra liðinni tíð. Leikskólamál í Reykjavík eru því ekki í vanda vegna skorts á vilja heldur vegna stýringar aðila þar sem enginn ber skýra ábyrgð. Leikskólastjórar og kennarar eiga skilið að sýna getu sína í verki. Börnin og leikskólinn eiga miklu betra skilið, leikskólastjórar, leikskólakennarar sem og aðrir starfsmenn Börn og foreldrar eiga ekki að borga fyrir vanmátt og skipulagsleysi borgarinnar. Höfundar eru ráðgjafi og kennari og eru fyrirsvarsmenn Okkar borg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Okkar borg Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira