Sport

Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur

Aron Guðmundsson skrifar
Lindsey Vonn datt illa í keppnisbrautinni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn síðastliðinn.
Lindsey Vonn datt illa í keppnisbrautinni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn síðastliðinn. Vísir/Getty

Alan Kildow, faðir bandarísku skíðadrottningarinnar Lindsey Vonn segir að ef það væri undir sér komið myndi dóttir hans ekki keppa aftur á skíðum. Vonn meiddist illa í keppni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn síðastliðinn.

Á fleygiferð í brautinni á sunnudaginn flæktist hægri handleggur Vonn í keppnishliði með þeim afleiðingum að hún missti stjórn á ferð sinni og féll harkalega til jarðar. 

Við það fótbrotnaði Vonn illa en miklar efasemdir höfðu verið uppi um þátttöku hennar á leikunum sökum þess að aðeins viku fyrir þá sleit hún krossband. 

Meðvituð um að þetta gætu verið hennar síðustu Ólympíuleikar ákvað hin 41 árs gamla Vonn að mæta til leiks á leikunum eftir að hafa ráðfært sig við lækna og sérfræðinga en gamanið entist ekki lengi. 

Í færslu sem Vonn birti á samfélagsmiðlum í gær, eftir að hafa gengist undir tvær aðgerðir vegna fótbrotsins, sagðist skíðadrottningin ekki sjá eftir neinu en leiða má líkur að því að keppnisferli hennar gæti verið lokið. 

Faðir hennar væri hið minnsta til í að hún myndi ekki keppa aftur. Hann tjáir sig um dóttur sína í viðtali við AP fréttaveituna:

„Hún er orðin 41 árs og þetta eru endalokin á hennar keppnisferli,“ sagði faðir Vonn, Alan Kildow. „Það verða ekki fleiri keppnir á döfinni hjá henni svo lengi sem ég hef eitthvað um það að segja.“

Alan, auk systkina Lindsey Vonn hafa verið við hlið hennar á sjúkrahúsinu í Treviso á Ítalíu þar sem að hún gekkst undir aðgerðir vegna fótbrotsins. 

„Hún er sterkur einstaklingur. Hún þekkir líkamlega sársaukann og skilur aðstæðurnar sem hún er nú í. Hún er að takast á við þær bætur en ég átti von á. Hún er mjög, mjög sterk.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×