Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Kjartan Kjartansson skrifar 11. febrúar 2026 09:21 Trump þegar hann skrifaði undir tilskipun um aukna kolavinnslu til að knýja gagnaver í fyrra. Lengst til vinstri er Lee Zeldin, forstjóri Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna, hýr á brá. Vísir/EPA Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að kippa stoðunum undan loftslagsaðgerðum og reglum með því að hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar mönnum í vikunni. Fastlega má þó gera ráð fyrir að dómstólar eigi lokaorðið um það.
Lagagrundvöllur alls kyns loftslagsaðgerða bandarísku alríkisstjórnarinnar hefur byggt á áliti Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna að gróðurhúsalofttegundir, sem valda hnattrænni hlýnun, séu skaðlegar heilsu og velferð manna. Nú ætlar ríkisstjórn Donalds Trump og repúblikana að fella þetta álit umhverfisstofnunarinnar úr gildi og afnema alls kyns reglugerðir, þar á meðal um útblástur bíla og orkuvera. Umhverfisverndarsamtök lýsa aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem umfangsmestu aðför að aðgerðum alríkisstjórnarinnar gegn loftslagsbreytingum í sögu Bandaríkjanna. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar nú breytir engu að síður ekki miklu í reynd til skemmri tíma litið. Ríkisstjórn Trump aðhefst hvort eð er ekkert til þess að bregðast við loftslagsbreytingum og hafa ríki og borgir undir stjórn demókrata leitt þá baráttu. Þegar og ef demókratar komast aftur til valda í Washington-borg er líklegt að fyrsta verk nýs forstjóra umhverfisstofnunarinnar verði að endurvekja loftslagsreglurnar. Velkist líklega um fyrir dómstólum næstu árin Öruggt er að alríkisstjórninni verði stefnt fyrir dómstólum felli hún útblástursreglurnar úr gildi. Þar þyrfti ríkisstjórnin að færa rök fyrir því að ekki sé lengur ástæða til að telja gróðurhúsalofttegundir skaðlegar. Erfitt er að sjá hvaða efnislegu rök hún gæti fært fyrir því. Fleiri ár gætu þó liðið þar til niðurstaða fæst fyrir dómi. AP-fréttastofan bendir á að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafi þegar tekið af tvímæli um að gróðurhúsalofttegundir teljist loftmengun með dómi sem féll árið 2007. Síðan þá hafa alríkisdómstólar ítrekað hafnað kröfum repúblikana um að fella álit umhverfisstofnunarinnar um skaðsemi þeirra úr gildi. Undir stjórn repúblikana, bæði í alríkisstjórninni og í hæstarétti, hafa dómafordæmi þó ekki endilega fordæmi. Alríkisstofnun sem veitir hæstarétti og alríkisdómstóli ráðgjöf um vísindaleg og tæknileg málefni hefur nú fjarlægt allar upplýsingar um loftslagsbreytingar úr handbók sinni fyrir dómara. Það er stofnunin sögð hafa gert vegna þrýstings frá dómsmálaráðherrum ríkja þar sem repúblikanar eru við völd. Fá afneitara til að skrifa næstu vísindaskýrslu Bæði Trump sjálfur og repúblikanar upp til hópa hafa um árabil virt vísindalega þekkingu á orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga að vettugi. Til þess að reyna að styrkja málstað sinn hefur stjórn Trump fengið hóp þekktra afneitra loftslagsvísinda til þess að skrifa næstu stóru loftslagsskýrslu sem alríkisstjórninni er skilt að láta vinna á nokkurra ára fresti.
Donald Trump Bandaríkin Loftslagsmál Vísindi Umhverfismál Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira