Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2026 07:31 Breezy Johnson fagnar með Ólympíugullið sem hún vann í bruni. Hún komst ekki á pall í risasviginu en fékk engu að síður verðlaun í markinu, bara af allt öðrum toga. EPA/JEAN-CHRISTOPHE BOTT Þetta verða heldur betur eftirminnilegir Ólympíuleikar fyrir bandarísku alpaskíðakonuna Breezy Johnson.
Johnson féll reyndar úr leik í risasviginu á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina en eftir að hún kom í mark beið kærastinn Connor Watkins eftir henni. Breezy Johnson hafði aðeins verið á marksvæðinu í nokkrar mínútur þegar kærastinn dró upp hring og fór á skeljarnar fyrir framan áhorfendur og aðra keppendur. Margir urðu vitni að atburðinum í Ólympíukeppninni á fimmtudag. Hún hafði unnið gullverðlaun í bruni fyrr á leikunum en vonbrigðin með risasvigið voru fljót að breytast í mikla gleði. Johnson var ekki lengi að svara bónorðinu játandi. Í kjölfarið stillti hún sér upp fyrir myndatöku með trúlofunarhringinn. Með hringnum fékk Johnson viðarstykki þar sem þessi texti var ritaður: „Honestly, who are we to fight the alchemy?“ Textinn er úr lagi Taylor Swift „The Alchemy“. Þegar bandaríska sjónvarpsstöðin NBC spurði hana hvort hana hefði dreymt um að trúlofa sig á sömu Ólympíuleikum og hún vann gullverðlaun í bruni, sagði Johnson: „Það var vonin mín! En það er algjörlega galið hvað allt gerist í einu og raunveruleikinn er svo ólíkur því sem maður ímyndaði sér, og svo miklu betri,“ sagði Breezy Johnson. .@_BreezyJohnson just added another ring to the Olympics 💍🥹Huge congrats to Breezy and Connor on their engagement 🫶 pic.twitter.com/lQASJPAMnb— U.S. Ski & Snowboard Team (@usskiteam) February 12, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Fleiri fréttir Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Sjá meira