ICE dregur saman seglin í Minneapolis Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 22:41 Tom Homan „landamærakeisari“ sagði aðgerðirnar hafa borið mikinn árangur. AP Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að binda enda á aðgerðir Innflytjenda- og tollastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í Minnesota. Þúsundir voru handteknir og tveir bandarískir ríkisborgarar voru skotnir til bana í aðgerðunum, sem stóðu yfir í tvo mánuði.
Tom Homan, svokallaður „landamærakeisari“ Trump, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í Minneapolis í kvöld. Homan segir fjögur þúsund manns hafa verið handteknir í aðgerðunum, sem hann segir hafa borið góðan árangur. Þá sagði hann Minneapolis-borg öruggari fyrir vikið. Ástæðurnar breytilegar Aðgerðin er samkvæmt upplýsingum frá heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna sú stærsta í málefnum innflytjenda í sögu ríkisins og hefur vakið hörð viðbrögð á heimsvísu. Til stendur að brottvísa þeim mikla fjölda fólks sem ICE-liðar handtóku í aðgerðunum, sem tugþúsundir íbúa Minneapolis hafa mótmælt. Eins og fram hefur komið voru Alex Pretti og Renee Good, tveir 37 ára bandarískir ríkisborgarar, skotnir til bana af ICE-liðum með nokkurra daga millibili meðan á aðgerðunum stóð. Í upphafi sagðist Trump hafa ráðist í aðgerðirnar til þess að uppræta meintan þjófnað sómalskra innflytjenda, sem eru samkvæmt umfjöllun AP að stórum hluta til bandarískir ríkisborgarar, á opinberu fé. Síðan beindi hann sjónum sínum að öðrum þjóðernishópum. ICE hefur vísað til hinna handteknu sem hættulegra glæpamanna en þrátt fyrir það eru margir þeirra með hreint sakavottorð, eins og til dæmis hinn fimm ára gamli Liam Conejo Ramos. Bæði borgaryfirvöld í Minneapolis og ríkisyfirvöld í Minnesota hafa fordæmt handtökurnar harðlega og segja þær hafa valdið samfélaginu og hagkerfinu langtímaskaða. Á blaðamannafundi biðlaði Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, til íbúa að vera áfram á varðbergi næstu daga á meðan ICE-liðar undirbúa brottför úr borginni. Hann mælti fyrir tíu milljarða dala fjárframlögum til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir tekjutapi vegna aðgerðanna. Þá biðlaði hann til Hvíta hússins að leggja sitt af mörkum til að koma á efnahagslegum stöðugleika í borginni á ný. „Alríkisstjórninni ber að bæta það sem hún skemmdi. Hún á ekki að komast upp með að brjóta hluti án þess að greiða fyrir þá.“ Homan var óskýr um hvenær nákvæmlega fulltrúar eftirlitsins myndu yfirgefa borgina en Walz sagði hann hafa fullvissað sig um að þeir legðu af stað hvað úr hverju.
Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Hinn írski Seamus Culleton hefur setið í fangageymslu Innflytjenda- og tollastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í nærri því fimm mánuði og segist óttast um líf sitt. Hann var handtekinn fyrir að vera lengur í Bandaríkjunum en níutíu daga vegabréfsáritun sem hann fékk árið 2009 heimilaði honum en hann er giftur bandarískri konu, með vinnuleyfi í Bandaríkjunum og rekur verktakafyrirtæki í Boston. 11. febrúar 2026 11:13 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Hinn írski Seamus Culleton hefur setið í fangageymslu Innflytjenda- og tollastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í nærri því fimm mánuði og segist óttast um líf sitt. Hann var handtekinn fyrir að vera lengur í Bandaríkjunum en níutíu daga vegabréfsáritun sem hann fékk árið 2009 heimilaði honum en hann er giftur bandarískri konu, með vinnuleyfi í Bandaríkjunum og rekur verktakafyrirtæki í Boston. 11. febrúar 2026 11:13