Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Sindri Sverrisson skrifar 13. febrúar 2026 11:35 Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, sýnir gagnrýni á nýja vefinn skilning. vísir/Sigurjón Eiður Smári Guðjohnsen er markahæsti landsliðsmaður Íslands, ekki Gylfi Þór Sigurðsson, og fimm leikir hafa verið teknir af leikjamethafanum Söru Björk Gunnarsdóttur. Þannig er alla vega staðan á nýjum vef Knattspyrnusambands Íslands. Framkvæmdastjóri sambandsins biður fólk að sýna biðlund. „
Þetta hefur tekið lengri tíma en við ætluðum og ég skil vel pirringinn, en það eru engin gögn glötuð og þetta mun allt koma,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ. Nýr vefur KSÍ fór í loftið í síðasta mánuði og þá er sérstakt KSÍ-app nú í boði þar sem fólk getur til að mynda valið sér sitt uppáhaldslið til að fylgjast með leikjadagskrá þess. Hins vegar er ansi mörgu ábótavant á nýja vefnum og ljóst að notendur hans sakna gamla KSÍ-vefsins mikið á meðan verið er að vinna í þeim vanköntum sem finnast. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði 79 mörk á mögnuðum landsliðsferli en þó bara 74 mörk samkvæmt prófílsíðu hennar á nýja vefnum hjá KSÍ.Mynd/Daníel Á nýja vefnum er til að mynda ansi flókið að komast inn í Bestu deildir karla og kvenna, sem og aðrar deildir, þegar það var áður hægt með tveimur smellum. Þá eru prófílsíður leikmanna ruglingslegar og fullar af röngum tölum. Eins og fyrr var bent á vantar til dæmis tvö landsliðsmörk hjá Gylfa Þór Sigurðssyni, svo Eiður Smári er með einu fleira eða 26 talsins. Og Birkir Bjarnason er bara skráður með 111 A-landsleiki en metið hans er samt 113 leikir. Leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur er 145 A-landsleikir en hún er bara með 140 skráða á nýja vefnum, og fimm mörk hafa verið tekin af Margréti Láru Viðarsdóttur sem skoraði 79 mörk í sínum 124 A-landsleikjum. „Engin gögn glötuð“ Á fleira mætti benda og segir Eysteinn að fólk verði einfaldlega að sýna biðlund. „Við erum mjög meðvituð um þetta. Síðan er flott að okkar mati en hlutirnir taka tíma og við erum í ákveðinni forgangsröðun. Forgangurinn er að koma mótum og öllu því skipulagi fyrir sumarið í lag. Við ákváðum að setja þessa síðu í loftið sem fyrst og erum að vinna niður forgangslistann. Gagnrýnin er réttmæt en þetta tekur tíma og fólk verður að sýna því skilning og þolinmæði,“ segir Eysteinn. Fer reglulega inn á https://t.co/gVD9ULk9fK og vonast eftir því að sjá tilkynningu um að verið sé að vinna í því að færa gömlu gögnin yfir á nýju síðuna eða eitthvað í þeim dúr. Ég hef ekkert séð og er farinn að hafa miklar áhyggjur. Vildi sýna ykkur dæmi um hörmung nyja vefsins— Jói Skúli (@joiskuli10) February 12, 2026 „Það eru engin gögn glötuð. Við munum koma þessari síðu á koppinn en það tekur tíma. Það var tekin ákvörðun um nýtt mótakerfi fyrir tveimur árum, samhliða því að fara í nýja heimasíðu, og þetta hefur reynst aðeins erfiðara en við ætluðum okkur. Við höfum verið að bæta þetta dag frá degi og svo hefur appið komið vel inn, sem nú er einnig aðgengilegt í Apple,“ segir Eysteinn. Betra að keyra á nýju kerfi og fá viðbrögðin En það er ekki hjá því komist að spyrja hvað lá á að koma vefnum í loftið, þegar gamli vefurinn virkaði svo vel og sá nýi augljóslega ekki fullmótaður? „Við mátum það svo að það væri betra að keyra á nýju kerfi og fá þá þessi viðbrögð inn sem við fáum núna. Auðvitað snýst þetta líka um kostnað. Að vera ekki að borga á tveimur stöðum. En við vinnum baki brotnu að því að koma öllu heim og saman,“ segir Eysteinn sem segir hins vegar erfitt að meta hve langan tíma sú vinna muni taka.
KSÍ Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Frakkland - Marokkó | Átta liða úrslitin hefjast Fótbolti Fleiri fréttir Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Frakkland - Marokkó | Átta liða úrslitin hefjast Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar FH - Þróttur R. | Hörkuslagur í Hafnarfirði Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga María að gera Þóri að afa Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Sjá meira