Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Agnar Már Másson skrifar 13. febrúar 2026 18:19 Þetta er vissulega allt annar hestur sem er líklegast með eðlilegan fjölda tanna. Mynd úr safni. Magnús Hlynur Hreiðarsson Tvær íslenskar konur stóðu í lagadeilum vegna hrossakaupa en önnur þeirra krafðist endurgreiðslu þar sem hesturinn reyndist vera með aukatönn, sem hún taldi valda honum óþægindum. Endurgreiðsluna fékk hún þó ekki þar sem ekkert benti til þess að aukatönnin hefði áhrif á heilsu hans. Seljandinn var því sýknaður.
Í dómi héraðsdóms Reykjaness segir að kona hafi keypt hest af annarri þann 22. apríl 2025 eftir að hafa prófað hann. Kaupandinn afþakkaði nýja dýralæknaskoðun fyrir kaupin og fékk þess í stað eldra heilbrigðisvottorð frá því í ágúst 2024, þar sem engar athugasemdir voru gerðar við munn eða meltingu hestsins. En eftir kaupin tók kaupandinn eftir því að hesturinn hefði aukatönn og vildi meina að tönnin ylli honum óþægindum og skertri meltingu. Konan sem keypti hestinn krafðist þess vegna að kaupunum yrði rift, kaupverðið endurgreitt ásamt dýralæknakostnaði, og að seljandinn tæki aftur við hestinum. Alls krafðist hún því um 773 þúsund króna. Málið var tekið fyrir í héraðsdómi Reykjaness. Í ljós kom fyrir dómi að dýralæknir hafði raspað tennur hestsins meðan hann var í eigu seljandans og nefnt að ein tönn væri „ekki alveg eins og hún ætti að vera,“ segir í dómnum. Dýralæknirinn taldi tönnina þó ekki plaga hestinn. Seljandinn upplýsti kaupandann ekki um þetta við söluna. Í upphafi aðalmeðferðar skoðuðu dómarar hestinn í hesthúsi í Hafnarfirði og sérfróður meðdómandi skoðaði munnhol hestsins sérstaklega. Dómurinn mat svo að ekki hafi verið sýnt fram á að aukatönnin skerti notkunargildi hestsins eða fóðrun hans. Auk þess var bent á að hesturinn væri 13 vetra gamall og hefði verið með tönnina í a.m.k. 10 ár án vandkvæða. Kaupandanum hefði auk þess verið í lófa lagið að láta skoða hestinn betur fyrir kaup, sérstaklega þar sem hann sagðist hafa tekið eftir stressi og spennu í honum við prufuna. Þá mat dómurinn svo að seljandinn hefði enga ástæðu til að ætla að tönnin væri galli sem þyrfti að upplýsa um, þar sem hún hafði ekki plagað hestinn. Seljandinn var því sýknaður og málið látið niður falla.
Dómsmál Hestar Hestaíþróttir Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira