Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 20:27 Marc Kennedy sást snerta steininn eftir að hafa sleppt honum, sem má ekki, en hann hefur líka verið áminntur fyrir orðaval sitt í garð mótherjanna. Getty/Andrew Milligan „Þú mátt fokka þér,“ sagði hinn kanadíski Marc Kennedy þegar Svíar sökuðu hann um svindl í krullu á Vetrarólympíuleikunum í gær. Myndband virðist þó sýna að Svíarnir hafi mikið til síns máls.
Krulla gefur sig út fyrir að vera mikil herramannaíþrótt en það ríkti ekki mikil virðing á milli manna í gær þegar Svíþjóð og Kanada mættust. Svíar höfðu skorað tvö stig í röð og minnkað muninn í 7-6 þegar lætin hófust á svellinu. Oskar Eriksson sakaði þá Kanadamenn um að svindla, með því að snerta steininn eftir að hafa sleppt honum af stað á svellinu, og virtist ansi viss í sinni sök. When @Leftykenbear from curling team @TeamBradJacobs was caught cheating by touching the stone after releasing it his reply to the Swedish athlete was "Fuck off". What an utter disgrace, @CurlingCanada! Nice display of the Olympic spirit in #Olympics2026 @curlercups@bpgallant… pic.twitter.com/WGcsLzDDJU— Anders Nyman (@Knytanders) February 13, 2026 Myndband sýnir líka að Eriksson virðist hafa haft hárrétt fyrir sér en snertingin fór þó framhjá dómurum. Það eru þó viðbrögð hins kanadíska Marc Kennedy sem hafa vakið meiri hneykslun en þau má sjá hér að neðan. "F*ck off!" 😳 Öppet bråk mellan Kanada och Sverige i curlingen. 📲 Streama hela OS i Milano Cortina 2026 på HBO Max och se det bästa på Eurosport 1. pic.twitter.com/gIWbxXGYuQ— Sports on HBO Max 🇸🇪 (@sportshbomaxse) February 13, 2026 Kennedy kvaðst alsaklaus og sagði Eriksson hreinlega að fokka sér, en Svíinn svaraði honum að bragði og sagðist geta sýnt honum myndband eftir leikinn. Kennedy hlaut aðvörun frá Alþjóða krullusambandinu í dag, ekki vegna meints svindls heldur vegna blótsyrðanna í garð Eriksson. Hann kvaðst sjá eftir orðavali sínu en ekki því að hafa svarað fyrir sig. Segist snerta steininn ómeðvitað „Ef að þetta gerist þá er það ekki eitthvað sem ég er meðvitaður um eða að gera til þess að stýra steininum. Þá er það bara algjörlega ómeðvitað og ekki eitthvað sem ég er að reyna,“ sagði Kennedy samkvæmt sænska miðlinum Expressen. „Núna þarf ég bara að einbeita mér að því að reyna að láta þetta ekki gerast. Ef að fingur snertir hann þá veit ég að það hefur ekki áhrif á lokaniðurstöðuna en það er alveg ljóst að maður má bara ekki gera þetta. Ég ætla ekki að sitja hér og neita því að þetta hafi gerst en ég þvertek fyrir að það sé viljandi,“ sagði Kennedy. „Það er algjörlega ómögulegt“ Niklas Edin, fyrirliði sænska liðsins, er á meðal þeirra sem trúa ekki útskýringum Kanadamannsins: „Þær koma bara vegna þess að myndbandið birtist. En ég veit að hann hefur séð svona myndbönd áður og þetta er alveg pottþétt ekki án meðvitundar hjá honum. Þú snertir ekkert 20 kíló af graníti með fingrinum án þess að finna það. Það er algjörlega ómögulegt,“ sagði Edin. Kanada vann leikinn í gær, 8-6, og var það þriðja tap Svía í þremur leikjum. Þeir unnu hins vegar 6-4 gegn Kína í dag en Kanada tapaði 9-5 gegn Sviss.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Krulla Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tileinkaði Úkraínu sigurinn Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Besta gengi Ítala á risamóti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann? Fær verðlaun sem bæði Messi og Ronaldo fengu á sínum tíma Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Einn sá besti færir sig um set Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Sjá meira