Elín í 43. sæti en Sonja fékk byltu Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 13:56 Elín Elmarsdóttir van Pelt í brekkunni í dag. Hún hafnaði í 43. sæti. Elín Elmarsdóttir Van Pelt hafnaði í 43. sæti af 76 keppendum í frumraun sinni í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Cortina. Stalla hennar Sonja Lí Kristinsdóttir féll við í brautinni og tókst því ekki að klára greinina.
Þær tvítugu Elín og Sonja voru báðar að þreyta frumraun sína á Vetrarólympíuleikum er þær renndu sér niður í stórsviginu í morgun og tókst nokkuð vel til áður en kom að síðari ferðinni í greininni eftir hádegið. Elín missti nokkrar sekúndur strax í upphafi þegar henni skreikaði lítillega fótur þegar hún ræsti ferðina. Hún fór síðari ferð dagsins á 1:16,93 og var á 2:27,21 samtals, tæpum 14 sekúndum á eftir hinni ítölsku Brignone sem fagnaði sigri. Elín hafnaði í 43. sæti. Sonja Lí fór í brekkuna fljótlega á eftir Elínu en hún hafði verið tveimur sekúndum hægari en landa hennar í fyrri ferð dagsins. Hún lenti í vandræðum og lenti á einu hliðanna eftir að hafa runnið til í brautinni. Hún féll til jarðar og virtist snúa aðeins upp á hnéð en stóð blessunarlega á lappir og renndi sér niður. Sonja féll því úr keppni í greininni. Sonja Li féll við en virtist heil eftir fallið.Mattia Ozbot/Getty Images Hvorki Elín né Sonja hafa lokið keppni á leikunum. Báðar verða þær í eldlínunni á miðvikudaginn kemur er þær keppa í svigi.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Sjá meira