Rústaði á sér fótunum en varð samt stjarna leikanna Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2026 21:20 Federica Brignone tók einn dag í einu og tókst að vinna tvenn Ólympíugull, tíu mánuðum eftir fótbrot og krossbandsslit. Samsett/Instagram/Getty Ítalska skíðadrottningin Federica Brignone var ekki viss um að hún gæti skíðað aftur, eftir hræðilegt slys í keppni fyrir tíu mánuðum. Einhvern veginn tókst henni samt að keppa á Vetrarólympíuleikunum í ár og gott betur því hún er búin að vinna tvenn gullverðlaun.
Brignone hálfrústaði á sér fótunum þegar hún féll í brekkunni á síðasta ári og bæði fótbrotnaði og sleit krossband í hné. Hún gat ekki gengið eðlilega í fimm mánuði. „Mantran mín var sú að morgundagurinn yrði betri,“ sagði Brignone samkvæmt Washington Post, og það átti svo sannarlega eftir að verða raunin. From @TheAthletic: There will be a lot of contenders for the athletes to have had the best Winter Olympics — and Federica Brignone is one of them. The Italian skier, who returned to competition a month ago after a bad injury, won her second gold medal. https://t.co/jM5bbZhhRD pic.twitter.com/PzF87zrVis— The New York Times (@nytimes) February 15, 2026 Samt var Brignone alls ekki bjartsýn fyrir leikana, skiljanlega, eftir allt sem á undan var gengið. „Ég ætti ekki að vera hérna“ Á æfingu fyrir aðeins níu dögum sagði hún: „Það er enn mikill sársauki. Ég er ekki enn hundrað prósent. Ég meina, ég er ekki einu sinni 80 prósent. En svona er þetta og ég hef engar afsakanir. Ég reyni mitt besta. Ég ætti ekki að vera hérna svo ég er ánægð með að vera hér.“ Brignone var sem sagt full af auðmýkt yfir því að geta yfir höfuð verið með á leikunum í heimalandi sínu en tók sig svo til og vann sinn fyrsta Ólympíumeistaratitil, í risasviginu. This is an Italian 🇮🇹 father watching his daughter, Federica Brignone, make historyBecoming the first woman to win, at the same Olympic Games, two gold medals in both Super-G and Giant SlalomA father’s pride that truly brings tears to your eyes🇮🇹✨pic.twitter.com/VmnoxBMC98— Mambo Italiano (@mamboitaliano__) February 15, 2026 Hún bætti svo við öðrum gullverðlaunum í stórsviginu í dag. Hin sænska Sara Hector og hin norska Thea Louise Stjernesund enduðu á sama tíma og deildu því silfurverðlaununum. Þær enduðu 62/100 úr sekúndu á eftir Brignone sem gladdi alla ítölsku þjóðina og kannski ekki síst pabba sinn eins og sjá mátti á Eurosport á Ítalíu.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjá meira