„Ung kona vinnur gull og verður fyrir fordómum og niðurlægingu“ Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2026 22:42 Hafrún Kristjánsdóttir segir ólíðandi hvernig sumir komi fram í garð hnefaleikakonunnar Imane Khelif. Samsett/Vísir/Getty „Við getum ekki komið svona fram við fólk. Ef við ætlum að halda því fram að náttúrulegur líffræðilegur breytileiki sé vandamál hvar ætlum við þá að draga línuna? Ætlum við að banna körfuboltamenn yfir 2,05 m?“
Þetta skrifar Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, í tengslum við umræðu um hnefaleikakonuna Imane Khelif. Þá rifjar Hafrún upp kynni sín af hlaupakonunni Caster Semenya og þá þrautagöngu sem hún þurfti að ganga í gegnum eftir að hafa öðlast heimsfrægð aðeins 18 ára gömul. Hafrún birtir skrif sín í tengslum við pistil Vals Páls Eiríkssonar á Vísi fyrr í dag. Kveikjan að pistlinum voru þær villigötur sem sumir virðast á um það að Khelif sé í raun og veru karl, bara vegna þess að hún er með óvenju hátt testósterónmagn í líkamanum eins og hún talaði sjálf um í viðtali nýlega. Hafrún segir að umræðan um Khelif sé af sama meiði og þegar Semenya sló í gegn árið 2009 með ótrúlegum hraða sínum í 800 metra hlaupi. „Samt hefur ítrekað verið gefið einhvers konar skotleyfi á þær“ „Þessar konur eru konur. Ekki trans konur. Ekki karlar. Þær eru konur, með náttúrulegan líffræðilegan breytileika. Samt hefur ítrekað verið gefið einhvers konar skotleyfi á þær: að gera grín, hæðast og draga kyn þeirra í efa,“ skrifar Hafrún en í þeim hópi eru menn á borð við Donald Trump Bandaríkjaforseta, Elon Musk og rithöfundinn J. K. Rowling. „Sumir valdamestu menn í heimi hafa opinberlega talað um þær sem karla eða fríks. Og við verðum að muna: þetta eru ungar konur sem lenda skyndilega í kastljósi heimsfjölmiðla og eru á forsíðu heimspressunnar fyrir hvað þær eru skrítnar, svo skrítnar að þær ættu ekki að mega vera með. Þetta kemur alltaf í kjölfarið að þær standa sig vel í íþrótt sinni eftir áralanga þjálfun,“ skrifar Hafrún. Að hluta til hátíð þeirra sem eru öðruvísi Hún hefur farið á ferna Ólympíuleika og bendir á að á þessu stærsta sviði íþróttanna sé einmitt oft íþróttafólk sem flokka megi sem „útlaga“ í einhverjum skilningi, vegna líkamlegrar byggingar sem veiti þeim oft forskot á meðalmanneskjuna. „Ólympíuleikar eru í raun að hluta til hátíð þeirra sem eru á einhvern hátt öðruvísi. Öðrúvísi en líka ótrúlega dugleg að vinna með það sem þau fengu í vöggugjöf. Náttúrulegur breytileiki mannslíkamans blasir þar við manni og hann er fallegur. Við fögnum því þegar fólk finnur íþrótt sem hentar líkama þeirra. Og við getum bent á að afreksfólk kemur í öllum stærðum og gerðum. Ég hef aldrei heyrt gagnrýni á þennan breytileika, nema þegar kemur að konum sem hafa óvenju hátt náttúrulegt magn testósteróns. Enginn heldur því fram að það sé svindl að blakari sé 2,20 m á hæð. Enginn stingur upp á að banna körfuboltamenn yfir 2,05 m. En þegar kona hefur líffræðilega eiginleika sem víkja frá meðaltali þá breytist umræðan,“ skrifar Hafrún sem vonar að umræðan breytist. „Ólympíuleikar eru vettvangur mannlegs fjölbreytileika og ef fólk er eitthvað mikið öðruvísi þá gengur ekki að það sé ráðist á það fyrir það í heimspressunni. Hvað þá af valdamesta fólki í heimi.“ Pistil Hafrúnar má sjá í heild sinni hér að neðan.
Box Ólympíuleikar 2024 í París Frjálsar íþróttir Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Fleiri fréttir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ „Við þurfum að gera margt betur“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér „Ekki rétti maðurinn til að gefa fullkomið svar við spurningunni“ „Svo lengi sem ég spila þá er ég glaður“ Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ Eyjakonur juku á raunir HK Sinner áfram frá og enn græðir Zverev „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjá meira