Borgarlínan hefur ekki einróma stuðning Þórir Garðarsson skrifar 16. febrúar 2026 22:02 Því er ítrekað haldið fram að Borgarlína njóti stuðnings allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. En þegar farið er yfir samþykktir, bókanir og yfirlýsingar sveitarfélaga utan Reykjavíkur, blasir við önnur mynd. Enginn áhugi á að þrengja að einkabílnum Þó að Kópavogur, Garðabær, Seltjarnarnes og Hafnarfjörður hafi gerst aðilar að Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafa þau ekki fallist á þær afleiðingar fyrir umferð einkabíla sem Reykjavíkurborg sækist eftir með Borgarlínunni. Samgöngusáttmálinn er rammasamkomulag. Hann felur í sér sameiginlega sýn um eflingu samgangna, fjármögnun og langtímahugsun. Samgöngusáttmálinn er ekki einsleitt samþykki fyrir ákveðinni útfærslu Borgarlínu, né að hún verði byggð á kostnað núverandi gatnakerfis eða með markvissri skerðingu á umferð einkabíla. Skilyrði nágranna Reykjavíkurborgar Sveitarfélög utan Reykjavíkur hafa ítrekað lagt áherslu á að Borgarlínan verði þróuð með fyrirvörum, í áföngum og í samspili við núverandi samgöngukerfi. Í þeim áherslum felst meðal annars: • Að einkabíllinn verði áfram lykilferðamáti fyrir stóran hluta íbúa. • Að ekki verði gengið gegn umferðargetu stofnæða. • Að Borgarlína verði viðbót og valkostur – ekki tæki til að þrengja að bílaumferð. • Að framkvæmdir verði réttlættar með raunverulegri eftirspurn fremur en á grundvelli hugmyndafræði. Þessi sjónarmið endurspegla ólíkt byggðamynstur, aðrar ferðavenjur og aðrar forsendur en í miðborg Reykjavíkur. Nágrannasveitarfélög eru ekki að skipuleggja þéttingu byggðar með sambærilegum hætti og Reykjavík. Stuðningur sveitarfélaganna við að kanna, þróa eða taka þátt í sameiginlegu samgönguverkefni er ekki það sama og samþykki fyrir því að breyta ferðavenjum fólks með með valdi eða skerða umferð einkabíla. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Borgarlína Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Því er ítrekað haldið fram að Borgarlína njóti stuðnings allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. En þegar farið er yfir samþykktir, bókanir og yfirlýsingar sveitarfélaga utan Reykjavíkur, blasir við önnur mynd. Enginn áhugi á að þrengja að einkabílnum Þó að Kópavogur, Garðabær, Seltjarnarnes og Hafnarfjörður hafi gerst aðilar að Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafa þau ekki fallist á þær afleiðingar fyrir umferð einkabíla sem Reykjavíkurborg sækist eftir með Borgarlínunni. Samgöngusáttmálinn er rammasamkomulag. Hann felur í sér sameiginlega sýn um eflingu samgangna, fjármögnun og langtímahugsun. Samgöngusáttmálinn er ekki einsleitt samþykki fyrir ákveðinni útfærslu Borgarlínu, né að hún verði byggð á kostnað núverandi gatnakerfis eða með markvissri skerðingu á umferð einkabíla. Skilyrði nágranna Reykjavíkurborgar Sveitarfélög utan Reykjavíkur hafa ítrekað lagt áherslu á að Borgarlínan verði þróuð með fyrirvörum, í áföngum og í samspili við núverandi samgöngukerfi. Í þeim áherslum felst meðal annars: • Að einkabíllinn verði áfram lykilferðamáti fyrir stóran hluta íbúa. • Að ekki verði gengið gegn umferðargetu stofnæða. • Að Borgarlína verði viðbót og valkostur – ekki tæki til að þrengja að bílaumferð. • Að framkvæmdir verði réttlættar með raunverulegri eftirspurn fremur en á grundvelli hugmyndafræði. Þessi sjónarmið endurspegla ólíkt byggðamynstur, aðrar ferðavenjur og aðrar forsendur en í miðborg Reykjavíkur. Nágrannasveitarfélög eru ekki að skipuleggja þéttingu byggðar með sambærilegum hætti og Reykjavík. Stuðningur sveitarfélaganna við að kanna, þróa eða taka þátt í sameiginlegu samgönguverkefni er ekki það sama og samþykki fyrir því að breyta ferðavenjum fólks með með valdi eða skerða umferð einkabíla. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar