„Okkur líður vel og við erum að spila vel“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 19. febrúar 2026 21:38 Þórir Guðmundur á fleygiferð. Vísir/Diego KR vann í kvöld öruggan og sannfærandi þrettán stiga sigur 92-105 á Njarðvík þegar þessi lið mættust í IceMar-höllinni í 18. umferð Bónus deild karla í kvöld. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var gríðarlega öflugur í liði KR og var að vonum sáttur með sigurinn. „
Góður sóknarleikur af okkur hálfu. Við vorum fínir í vörn svona mest megnis af leiknum líka“ sagði Þórir Guðmundur Þorbjarnarson eftir sigurinn í kvöld. „Við vorum að byggja upp fínar f0rystur en vorum ekki alveg nógu duglegir að halda því. Við hleyptum þeim svolítið inn í leikinn í fjórða en ég er bara virkilega ánægður með að vinna leikinn“ KR var að hitta gríðarlega vel fyrir aftan þriggja stiga línuna í kvöld. „Sérstaklega í fyrsta leikhluta, ég held að við höfum sett einhverja 8-9 þrista í fyrsta leikhluta og okkur leið vel“ „Við vorum að fá mikið af opnum skotum og vorum að setja þau niður. Það svona setti tóninn snemma fyrir okkur og við náðum að byggja ofan á það“ KR fór með öfluga forystu inn í fjórða leikhluta sem á endanum reyndist bara of mikil fyrir Njarðvikinga. „Ég held að í þriðja leikhluta þá náðum við þessu upp í nítján og vorum að vinna með nítján fyrir fjórða. Það er fín forysta en við vorum svona aðeins að reyna halda henni í staðin fyrir að spila bara okkar leik og þeir náðu þessu aðeins niður“ KR unnu í kvöld sinn áttunda sigur í röð en Þórir vill þó ekki meina að KR-ingum líði eins og þeir séu ósigrandi þrátt fyrir það. „Nei, okkur líður vel og við erum að spila vel. Við undirbúum okkur alltaf bara vel fyrir hvern einasta leik og bara virkilega gott að ná sigri núna einmitt svona rétt fyrir pásu þannig við erum bara mjög glaðir með það“ „Við fáum svo fjóra flotta leiki hérna eftir pásuna og mætum tilbúnir í þá“ sagði Þórir Guðmundur Þorbjörnsson.
KR Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Sjá meira