Fótbolti

Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mikael Egill Ellertsson skoraði sigurmarkið í síðasta leik en gat ekki klárað fyrri hálfleikinn í kvöld vegna meiðsla.
Mikael Egill Ellertsson skoraði sigurmarkið í síðasta leik en gat ekki klárað fyrri hálfleikinn í kvöld vegna meiðsla. Getty/Simone Arveda

Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson meiddist í sigurleik Genoa á Juventus í ítölsku deildinni í kvöld.

Genoa vann þá 2-0 sigur á Juventus þökk sé tveimur mörkum á fyrsta hálftíma leiksins.

Liðið var 2-0 yfir þegar Mikael Egill þurfti að fara meiddur af velli á 41. mínútu.

Mörkin skoruðu þeir Kingsley Ehizibue á 12. mínútu og Tommaso Baldanzi á 28. mínútu.

Genoa hoppar upp í þrettánda sæti með þessum sigri en Juventus er í áttunda sætinu.

Genoa-menn voru að vinna sinn annan leik í röð og þann þriðja í síðustu fjórum leikjum.

Mikael er að spila stórt hlutverk hjá íslenska landsliðinu og verður vonandi búinn að ná sér fyrir næstu landsleiki sem eru í næsta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×