Fótbolti

Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfs­mörkum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Jóhann Helgason í baráttu um boltann við Andy Diouf, leikmann Internazionale, í leiknum í kvöld.
Þórir Jóhann Helgason í baráttu um boltann við Andy Diouf, leikmann Internazionale, í leiknum í kvöld. Getty/Maurizio Lagana

Þórir Jóhann Helgason og félagar í Venezia höfðu ekki heppnina með sér þegar stórlið Internazionale mætti í heimsókn í kvöld í ítölsku deildinni.

Venezia tapaði leiknum 2-0 þrátt fyrir að skora bæði mörkin.

Topplið Internazionale vann leikinn á tveimur sjálfsmörkum á síðustu tíu mínútum leiksins,

Þórir var í byrjunarliði Venezia en fór af velli á 68. mínútu í stöðunni 0-0.

Lion Lauberbach hafði reyndar komið Venezia í 1-0 á 29. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu eftir skoðun myndbandsdómara.

Fyrra sjálfsmarkið skoraði Matías Moreno á 80. mínútu en það síðara Redouane Halhal aðeins tveimur mínútum síðar.

Internazionale hefur unnið átta af fyrstu níu deildarleikjum sínum og hefur enn ekki tapað í Seríu A á leiktíðinni. Feneyjarliðið er aftur á móti í botnsætinu með aðeins einn sigur og þrjú stig í fyrstu níu leikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×