KSÍ skilaði rúmum 32 milljónum í hagnað en býst við mun verri afkomu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 16:55 Þorvaldur Örlygsson er formaður Knattspyrnusambands Íslands Vísir/Einar Knattspyrnusamband Íslands hefur nú birt ársreikning fyrir árið 2025 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 en sambandið skilaði tugum milljóna í hagnað á starfsárinu.
Rekstrarniðurstaða KSÍ á árinu 2025 eftir greiðslur til aðildarfélaga er hagnaður sem nemur 32.629.666 krónum eða næstum því 33 milljónum króna. Rekstrartekjur yfir tvo milljarða Rekstrartekjur KSÍ árið 2025 námu rúmlega 2,3 milljörðum króna. Það var þrettán prósent umfram áætlun, þar sem styrkir frá UEFA og FIFA vógu þyngst. Rekstrargjöld voru 2,24 milljarðar króna, eða fjórtán prósentum yfir áætlun, þar sem kostnaður við lokamót Evrópumóts kvenna er helsti áhrifaþátturinn. Rekstur Laugardalsvallar skilaði áfram tapi og hækkaði meðal annars vegna aukins kostnaðar við endurnýjun leikflatar Laugardalsvallar með nýju hybrid-grasi. KSÍ vinnur nú að nýjum rekstrar- og þjónustusamningi við Reykjavíkurborg á vettvangi Þjóðarleikvangs ehf. og bindur KSÍ vonir við nýjan og endurbættan samning sem tekur mið af breyttum rekstrarforsendum Laugardalsvallar með tilkomu nýs hybrid-grass með undirhita, sem og aukins rekstrarkostnaðar á framkvæmdatíma. Úthlutað var 107 milljónum króna til aðildarfélaga, auk framlags frá UEFA fyrir Club Youth Development. Aðeins tveggja milljóna króna hagnaði árið 2026 Lögð var líka fram rekstraráætlun sem gerir ráð fyrir rúmlega tveggja milljóna króna hagnaði árið 2026. KSÍ hefur hingað til haft þau viðmið að skila til ársþings samþykktri fjárhagsáætlun með að lágmarki þrjátíu milljónum króna í hagnað. Þessi niðurstaða um að skila áætlun 2026 með mjög litlum hagnaði kemur í kjölfar samvinnu og samráðs við hagaðila. Þær breytingar sem hafa orðið frá fyrra ári á tekjuhlið sambandsins eru eftirfarandi: Tekjufærslur ákveðinna verkefna á vegum UEFA eru ekki lengur heimilar, þar sem umrædd verkefni verða hér eftir eignfærð. A-landslið karla féll í C-deild Þjóðadeildar sem þýðir mun lægri tekjur til sambandsins. Tekjur frá PUMA-styrktaraðilum sambandsins lækka vegna breytinga á nýjum samningi þar sem fastar greiðslur lækka en árangurstengdar greiðslur hækka á móti. Leiðrétta þátttökugjöld og skera niður KSÍ hefur þess vegna þurft að leiðrétta þátttökugjöld móta og innheimta frekar samkvæmt heimildarákvæði í gildandi reglugerð um ferða- og uppihaldskostnað dómara. Einnig hefur KSÍ farið í að skera niður landsliðsverkefni og skrifstofukostnað, auk þess að nýta þau tækifæri sem gefast til að hagræða almennt í öllum rekstrarþáttum sambandsins. Handbært fé KSÍ 31. desember 2025 stóð í 492 milljónum króna. UEFA mælir með að knattspyrnusambönd séu með 20-40% af veltu sambandanna í lausafé, sem gerir 400 – 800 milljónir króna. Það má lesa meira um ársreikninginn hér.
KSÍ Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Sjá meira