Íranir mótmæla á ný Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 23:49 Aukin spenna hefur færst í viðræður Írana og Bandaríkjamanna, sem eru taldir líklegri en ekki til að ráðast á Íran. EPA Stúdentar við háskóla víðs vegar um Íran hafa staðið fyrir mótmælum gegn klerkastjórninni í dag. Mótmælin eru þau fyrstu síðan mótmælahrinunni, sem hófst í lok desember og áætlað er að hafi kostað þrjátíu þúsund manns lífið, lauk.
Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið, sem hefur undir höndum myndefni af mótmælum við Sharif-tækniháskólann í Teheran í dag. Á öðru myndbandi kastast í kekki milli mótmælenda og stuðningsmanna klerkastjórnarinnar. Setuverkföll fóru sömuleiðis fram í öðrum háskóla í Teheran til þess að minnast þeirra sem létust í mótmælunum í síðasta mánuði. Bandaríkjamenn hafa aukið viðbúnað í nágrenni við Íran svo um munar undanfarna daga og Trump ítrekað sagst íhuga að fyrirskipa árásir á hernaðarinnviði í landinu. Fyrr í vikunni var greint frá því að Bandaríkjamenn hefðu ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Boðuðu dauða æðstaklerks Bandaríkin og evrópska bandamenn þeirra hefur um nokkurt skeið grunað að Íranir undirbúi nú þróun á kjarnorkuvopni en Íranir hafna því sem fyrr. Bandarískir og íranskir embættismenn funduðu á þriðjudag í tengslum við mögulegt samkomulag um kjarnorkuáætlun Írans. Fram kom að fundinum loknum að samkomulag um ákveðin grundvallaratriði hefði náðst en sama dag sögðu heimildarmenn úr Hvíta húsinu að líklegra væri en ekki að Bandaríkjaher gerði árásir á Íran. Trump hefur margsinnis lýst yfir stuðningi við mótmælendur í Íran og sagt aðstoð á leiðinni. BBC hefur eftir myndskeiðum af mótmælum dagsins að mótmælendur hrópi „dauði fyrir einræðisherrann!“ og vísa þar með til Ayatollah Ali Khamenei æðstaklerks Íran. Sem stendur er óljóst hvort einhverjir mótmælendur hafi verið handteknir.
Íran Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira