Vonn svarar fyrir sig: „Sveið þegar fólk sagði að ég væri eigingjörn“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. febrúar 2026 07:02 Lindsey Vonn slasaðist illa í brunkeppni Vetrarólympíuleikanna fyrr í mánuðinum. getty/Julian Finney Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn hefur svarað þeim sem gagnrýndu þátttöku hennar á Vetrarólympíuleikunum fullum hálsi. Henni sárnaði að vera sökuð um eigingirni.
Vonn keppti á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina þrátt fyrir að vera nýbúin að slíta krossband í hné. Vont varð verra fyrir Vonn því hún datt í brautinni í brunkeppninni og fótbrotnaði illa. Hún hefur gengist undir alls fimm aðgerðir vegna meiðslanna. Eitthvað hefur borið á gagnrýni á að hin 41 árs Vonn hafi tekið þátt á Vetrarólympíuleikunum en ekki gefið sæti sitt eftir til yngri keppanda sem var heill heilsu. Vonn svaraði fyrir þessa gagnrýni í færslu á Instagram í dag. Á minningarnar að eilífu „Þetta var ekki allt til einkis. Þetta var allt og þetta var ekki draumur þótt þetta virðist fjarlægt þegar ég sit í þessu sjúkrarúmi núna,“ skrifaði Vonn. View this post on Instagram A post shared by L I N D S E Y • V O N N (@lindseyvonn) „En ég gerði þetta. Ég kom til baka. Ég vann. Ég mætti og gerði það sem flestir töldu ómögulegt fyrir mig á þessum aldri og með hnéð í þessu ásigkomulagi. Ég mun eiga þessar minningar að eilífu og ég er þakklát fyrir hverja eina og einustu þeirra. Hvert augnablik var stórkostlegt. Hvert augnablik var þess virði.“ Skilja ekki hvað það er að vinna fyrir einhverju Vonn segir að hún hafi átt fullan rétt á því að keppa á Vetrarólympíuleikunum. „Eitt af því sem sveið var þegar fólk sagði að ég væri eigingjörn og ætti að eftirláta öðrum Ólympíusætið mitt. Svo ég vildi bara fara yfir tímabilið fyrir alla hælbítana sem skilja ekki hvað það er að vinna fyrir einhverju,“ skrifaði Vonn en með færslunni eru helstu afrek hennar á tímabilinu tíunduð, í máli og myndum. „Það er ekki ómögulegt fyrr en það hefur verið gert. Ég náði ekki mínu helsta markmiði en ég gerði margt. Ég þakka þeim sem trúðu.“ Vonn er ein sigursælasta skíðakona allra tíma. Hún varð fyrsta bandaríska konan til að vinna til gullverðlauna í bruni á Vetrarólympíuleikunum í Vancouver 2010.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Tengdar fréttir Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina lýkur í dag og höfum við fengið að fylgjast með mögnuðum afrekum íþróttafólks í algjörum heimsklassa. Leikarnir hafa líka boðið upp á athyglisverðar fréttir sem hafa vakið töluverða athygli. Hér eru þær dregnar saman í einn pakka. 22. febrúar 2026 12:16 Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn lenti í árekstri í brunkeppninni í byrjun Ólympíuleikanna. Hún fótbrotnaði og hefur farið í fjórar aðgerðir síðan þá. 18. febrúar 2026 23:30 Vonn hefur ekki staðið upp í meira en viku Lindsey Vonn er loksins komin heim til Bandaríkjanna aftur. Þessi 41 árs gamla skíðakona segir að hún hafi ekki staðið í fæturna síðan hún datt illa á Ólympíuleikunum fyrir rúmri viku síðan. 17. febrúar 2026 08:32 Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Lindsey Vonn sendi fylgjendum sínum kveðju á samfélagsmiðlum og segist vera á batavegi en hún hefur gengist undir þrjár aðgerðir eftir að hafa fótbrotnað á Vetrarólympíuleikunum. 11. febrúar 2026 22:58 Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Alan Kildow, faðir bandarísku skíðadrottningarinnar Lindsey Vonn segir að ef það væri undir sér komið myndi dóttir hans ekki keppa aftur á skíðum. Vonn meiddist illa í keppni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn síðastliðinn. 10. febrúar 2026 23:18 Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Bandaríska skíðadrottningin Lindsey Vonn hefur tjáð sig í fyrsta skipti eftir að hún slasaðist illa í keppni á Vetrarólympíuleikunum í gær. Vonn sér ekki eftir neinu þrátt fyrir óbærilegan sársauka og efasemdir um þátttöku hennar. Lífið sé of stutt til að taka ekki áhættu. 9. febrúar 2026 22:59 Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn hefur gengist undir aðgerð vegna fótbrots á vinstri fæti eftir að hafa fallið illa í brunkeppni kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Cortina í dag. 8. febrúar 2026 20:00 Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Skíðadrottningin Lindsey Vonn upplifði brostna drauma í fyrstu ferð á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Hún lagði af stað með slitið krossband og féll í fyrstu ferð með hrikalegum afleiðingum. 8. febrúar 2026 11:25 Slysið stoppar ekki 41 árs Vonn sem keppir með slitið krossband Bandaríska skíðadrottningin Lindsey Vonn er mjög vongóð um að geta keppt í bruni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn, þrátt fyrir að hafa slitið krossband í hné við fall í keppni á föstudaginn. 3. febrúar 2026 18:32 Flutt slösuð í burtu í þyrlu viku fyrir Ólympíuleikana Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn datt illa í síðustu brunaðferð sinni á föstudag fyrir Ólympíuleikana og var flutt með þyrlu af brautinni til læknisskoðunar. 30. janúar 2026 20:16 Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Grindavík - Keflavík | Suðurnesjaslagur af bestu gerð Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Bayern München - Arsenal | Englandsmeistararnir heimsækja þýska stórliðið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sjá meira
Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina lýkur í dag og höfum við fengið að fylgjast með mögnuðum afrekum íþróttafólks í algjörum heimsklassa. Leikarnir hafa líka boðið upp á athyglisverðar fréttir sem hafa vakið töluverða athygli. Hér eru þær dregnar saman í einn pakka. 22. febrúar 2026 12:16
Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn lenti í árekstri í brunkeppninni í byrjun Ólympíuleikanna. Hún fótbrotnaði og hefur farið í fjórar aðgerðir síðan þá. 18. febrúar 2026 23:30
Vonn hefur ekki staðið upp í meira en viku Lindsey Vonn er loksins komin heim til Bandaríkjanna aftur. Þessi 41 árs gamla skíðakona segir að hún hafi ekki staðið í fæturna síðan hún datt illa á Ólympíuleikunum fyrir rúmri viku síðan. 17. febrúar 2026 08:32
Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Lindsey Vonn sendi fylgjendum sínum kveðju á samfélagsmiðlum og segist vera á batavegi en hún hefur gengist undir þrjár aðgerðir eftir að hafa fótbrotnað á Vetrarólympíuleikunum. 11. febrúar 2026 22:58
Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Alan Kildow, faðir bandarísku skíðadrottningarinnar Lindsey Vonn segir að ef það væri undir sér komið myndi dóttir hans ekki keppa aftur á skíðum. Vonn meiddist illa í keppni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn síðastliðinn. 10. febrúar 2026 23:18
Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Bandaríska skíðadrottningin Lindsey Vonn hefur tjáð sig í fyrsta skipti eftir að hún slasaðist illa í keppni á Vetrarólympíuleikunum í gær. Vonn sér ekki eftir neinu þrátt fyrir óbærilegan sársauka og efasemdir um þátttöku hennar. Lífið sé of stutt til að taka ekki áhættu. 9. febrúar 2026 22:59
Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn hefur gengist undir aðgerð vegna fótbrots á vinstri fæti eftir að hafa fallið illa í brunkeppni kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Cortina í dag. 8. febrúar 2026 20:00
Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Skíðadrottningin Lindsey Vonn upplifði brostna drauma í fyrstu ferð á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Hún lagði af stað með slitið krossband og féll í fyrstu ferð með hrikalegum afleiðingum. 8. febrúar 2026 11:25
Slysið stoppar ekki 41 árs Vonn sem keppir með slitið krossband Bandaríska skíðadrottningin Lindsey Vonn er mjög vongóð um að geta keppt í bruni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn, þrátt fyrir að hafa slitið krossband í hné við fall í keppni á föstudaginn. 3. febrúar 2026 18:32
Flutt slösuð í burtu í þyrlu viku fyrir Ólympíuleikana Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn datt illa í síðustu brunaðferð sinni á föstudag fyrir Ólympíuleikana og var flutt með þyrlu af brautinni til læknisskoðunar. 30. janúar 2026 20:16