Skaðleg efni ógna heilsu barna Guðrún Lilja Kristinsdóttir skrifar 24. febrúar 2026 14:45 Nýlegar rannsóknir sýna að skaðleg efni í umhverfinu geti haft óafturkræfar afleiðingar fyrir okkur og börnin okkar. Við getum haft áhrif og takmarkað skaðleg efni í nærumhverfinu – en hvað eigum við að velja? Framleiðsla efna og efnablanda hefur stóraukist síðustu áratugi og er þær að finna alls staðar í umhverfinu. Margar efnablöndur innihalda skaðleg efni og geta verið hormónaraskandi, valdið ofnæmi, fæðingargöllum og verið krabbameinsvaldandi. Börn eru sérstaklega viðkvæm. Þau eru smávaxin, með viðkvæmt kerfi og rannsaka heiminn með öllum skilningarvitum. Við foreldrar viljum vernda börnin fyrir öllum þeim ógnum sem leynast í umhverfinu. Þetta getur þó verið yfirþyrmandi verkefni enda þarf að huga að næringu, skjátíma, öryggisatriðum, svefni og svo mörgu fleiru. Skaðleg efni í umhverfi barna verða að vera á þessum lista og krefjast þess að við horfumst í augu við óþægilegar staðreyndir. Það getur verið flókið að átta sig á efnasamsetningum leikfanga og snyrtivara. Góðu fréttirnar eru þær að rétt eins og við takmörkum skjátíma eða veljum öruggan bílstól fyrir börn þá er auðvelt að velja vel og takmarka skaðleg efni í þeirra umhverfi. Það getum við gert með því að velja Svansmerktar vörur þar sem er tryggt að sérfræðingar hafi útilokað efni sem eru skaðleg og gætu verið skaðleg heilsu þeirra. Í matvöruverslunum er hægt að finna fjölmargar Svansmerktar snyrtivörur. Svansmerktum snyrtivörum fyrir börn hefur fjölgað mikið undanfarin ár og er úrvalið orðið mjög gott hérlendis. Við náum ekki að forðast öll skaðleg efni en getum þó tekið meðvitaðar ákvarðanir um að velja Svansvottaðar snyrti- og efnavörur og þannig lágmarkað áhættuna sem skaðleg efni og efnablöndur geta haft. Fyrir áhugasama er fyrirlestur um málefnið í barnabókasafni Norræna hússins næstkomandi miðvikudag klukkan 10:30. Höfundur er framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Börn og uppeldi Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Skoðun Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Sjá meira
Nýlegar rannsóknir sýna að skaðleg efni í umhverfinu geti haft óafturkræfar afleiðingar fyrir okkur og börnin okkar. Við getum haft áhrif og takmarkað skaðleg efni í nærumhverfinu – en hvað eigum við að velja? Framleiðsla efna og efnablanda hefur stóraukist síðustu áratugi og er þær að finna alls staðar í umhverfinu. Margar efnablöndur innihalda skaðleg efni og geta verið hormónaraskandi, valdið ofnæmi, fæðingargöllum og verið krabbameinsvaldandi. Börn eru sérstaklega viðkvæm. Þau eru smávaxin, með viðkvæmt kerfi og rannsaka heiminn með öllum skilningarvitum. Við foreldrar viljum vernda börnin fyrir öllum þeim ógnum sem leynast í umhverfinu. Þetta getur þó verið yfirþyrmandi verkefni enda þarf að huga að næringu, skjátíma, öryggisatriðum, svefni og svo mörgu fleiru. Skaðleg efni í umhverfi barna verða að vera á þessum lista og krefjast þess að við horfumst í augu við óþægilegar staðreyndir. Það getur verið flókið að átta sig á efnasamsetningum leikfanga og snyrtivara. Góðu fréttirnar eru þær að rétt eins og við takmörkum skjátíma eða veljum öruggan bílstól fyrir börn þá er auðvelt að velja vel og takmarka skaðleg efni í þeirra umhverfi. Það getum við gert með því að velja Svansmerktar vörur þar sem er tryggt að sérfræðingar hafi útilokað efni sem eru skaðleg og gætu verið skaðleg heilsu þeirra. Í matvöruverslunum er hægt að finna fjölmargar Svansmerktar snyrtivörur. Svansmerktum snyrtivörum fyrir börn hefur fjölgað mikið undanfarin ár og er úrvalið orðið mjög gott hérlendis. Við náum ekki að forðast öll skaðleg efni en getum þó tekið meðvitaðar ákvarðanir um að velja Svansvottaðar snyrti- og efnavörur og þannig lágmarkað áhættuna sem skaðleg efni og efnablöndur geta haft. Fyrir áhugasama er fyrirlestur um málefnið í barnabókasafni Norræna hússins næstkomandi miðvikudag klukkan 10:30. Höfundur er framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi.