Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 26. febrúar 2026 22:37 Bjarni Fritzson þjálfari ÍR, stýrði ungu liði sínu í bikarúrslitaleikinn í kvöld. Vísir/Hulda Margrét „Ég er mjög stoltur af þeim. Þeir eru æðislegir,“ sagði Bjarni Fritzson þjálfari ÍR eftir dramatískan sigur gegn KA í undanúrslitum Powerade-bikarsins. Lokatölur 32-31.
ÍR leiddi leikinn allt fram á lokamínúturnar þar sem leikmenn virtust ætla að missa sigurinn yfir til KA. Allt kom þó fyrir ekki og skoraði fyrirliði liðsins, Sveinn Brynjar, úr lokaskoti leiksins þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir. En hvernig leið Bjarna meðan á leik stóð? „Tilfinningin var góð. Ég var aðallega ánægður með hvernig við framkvæmdum sóknarplanið og varnarplanið og mér fannst spennustigið ótrúlega gott. Þeir voru með mikla orku en voru ekki á einhverjum yfirsnúningi. Það var í raun og veru það sem ég vildi, bara setja mikla orku í þetta. Mér fannst það takast fullkomlega. Þeir eru bara að fara inn í leikinn með þvílíkt sjálfstraust og að halda haus þegar á reynir sem gerist alltaf á móti svona frábæru liði. Ég gæti ekki verið stoltari af þeim.“ Sonurinn meiddist Snemma leiks meiddist sonur Bjarna, Baldur Fritz, og tók ekki frekari þátt í leiknum. ÍR missti þar með sinn allra besta leikmann út úr leiknum. Það virtist hafa lítil áhrif á ÍR-liðið, en af hverju? „Hann byrjaði leikinn náttúrulega frábærlega, þannig að það var algjör synd að missa hann. Elvar er mjög góður leikmaður og kom með frábæra innkomu. Mér fannst bara liðið gott, þetta snýst um það. Þetta er liðssport, maður í manns stað og allt það.“ Aðspurður hvernig taugarnar voru þegar Sveinn Brynjar fór inn úr horninu á lokaandartökum leiksins, sagðist hann þær vera góðar. Ég var líka svo ánægður „Góðar, þær voru alveg góðar. Mér leið bara vel. Sveinn hefur alveg verið að skora úr svona færum. Ég var líka svo ánægður, ég bað þá um að vera rólegir og gefa bara eitt skot í lokin en Bernard var bara „áfram, áfram komdu með boltann, ég er með þetta“. Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn. Ég vil frekar hafa þá þannig heldur en hikandi.“ ÍR mun mæta Haukum í úrslitaleik á laugardaginn um bikarinn. Leggst sá leikur vel í Bjarna. „Það leggst vel í mig. Ég hugsaði þetta, þetta er svo góð reynsla fyrir þá, svo gott tækifæri til að læra og verða betri og upplifa svona móment. Það gefur þér svo mikið. Fyrst og fremst er það bara þakklæti fyrir það. Við munum undirbúa okkur eins vel og við getum og spilum svo bara leikinn.“
Olís-deild karla ÍR Powerade-bikarinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira