Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2026 17:32 Íþróttafélagið Leiknir og knattspyrnudeild ÍR hafa ritað undir viljayfirlýsingu um stofnun nýs félags. ÍR/Leiknir 80. ársþing Knattspyrnusambands Íslands fer fram á morgun, laugardaginn 28. febrúar, en að þessu sinni fer þingið fram á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.
Á ársþingssíðunni á vef KSÍ má sjá að aðeins þrjár tillögur liggja fyrir þinginu. Þar er tillaga til lagabreytinga um aðild að KSÍ frá stjórn KSÍ og tillaga til lagabreytinga um Samninga- og félagsskiptanefnd, sem kemur einnig frá stjórn KSÍ, sem bæði eru tillögur um orðalagsbreytingu í lögum sambandsins. Það er hins vegar þriðja tillagan sem sker sig úr og er jafnframt sú eina sem kemur ekki frá stjórninni. Sú tillaga kemur frá bæði ÍR og Leikni Reykjavík og er um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti. Lagt er til að ársþing KSÍ 2025 samþykki að nýtt sameinað félag, knattspyrnudeildar ÍR og íþróttafélagsins Leiknis, taki sæti í deildarkeppni karla og kvenna keppnistímabilið 2027 í samræmi við stöðu félagsins sem hærra stendur í loks keppnistímabilsins 2026. Jafnframt að hið nýja félag taki stöðu allra yngriflokka í deildum og riðlum 2027 eftir stöðu þess félags sem hærra stendur í lok tímabils 2026. Einnig að hvort heldur sem nýtt félag verði stofnað undir nýrri kennitölu eða notist við eldri kennitölu hafi það ekki áhrif á tillögu þessa. Ofangreind tillaga öðlast aðeins gildi ef aðalfundir félaganna tveggja, Leiknis og ÍR, samþykkja tillögur starfshóps um stofnun hins nýja félags sem ber starfsheitið Breiðholt á aðalfundum sínum í apríl 2026. Stofnfundur hins nýja félags verður einnig að fara fram fyrir 1. desember 2026 en á haustmánuðum 2025 fór hópur af stað með verkefnið Breiðholt og kynnti það fulltrúum beggja félaganna. Íþróttafélagið Leiknir og knattspyrnudeild ÍR hafa svo í framhaldi af vinnu þessa hóps ritað undir viljayfirlýsingu um stofnun nýs félags.
KSÍ ÍR Leiknir Reykjavík Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Sjá meira