„Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ Hjörvar Ólafsson skrifar 28. febrúar 2026 22:22 Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, gefur leikmönnum sínum leiðbeiningar. Vísir(Anton Brink Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, kveðst ánæður og stoltur af leikmönnum og stuðningsmönnum liðsins og félagsins þrátt fyrir svekkjandi tap gegn Haukum í bikarúrslitaleik karla í handbolta í dag. „
Ég er bara fyrst og fremst stoltur af mínum leikmönnum. Þeir gáfu allt sem þeir áttu í verkefnið og það verður ekki af þeim tekið. Við vorum ekki nógu beittir í sóknarleik, sérstaklega í fyrri hálfeik og við komumst aldrei almennilega á flug á sóknarhelmingnum að þessu sinni. Spennustigið var svo stundum aðeins of hátt sem er bara eðlilegt og það varð til þess að við vorum of gótöttir á köflum. Þetta er hins vegar reynsla sem fer í bankann hjá ungum leikmönnum liðsins sem voru allir að stíga sín fyrstu skref á svona stóru sviði. Við erum komnir skammt á veg í þeirri vegferð sem liðið er á og það eru margar stórar og gleðilegar stundir fram undan hjá bæði hjá þessum leikmönnum og félaginu í heild. Það er ég algjörlega viss um,“ sagði Bjarni hreykinn af sínum mönnum. „Við gerðum fullt af góðum hlutum í þessum leik. Náðum að stilla strenginu betur í vörninni í seinni hálfleik og vorum ákveðnari í sóknaraðgerðum. Náðum að hreyfa vörnina betur og teygja á þeim áður en við fórum í árásir og það skilaði betri frammistöðu. Við göngum bara stoltir frá borði og nýtum þessa upplifun í næstu verkefni okkar,“ sagði hann aðspurður um hvað hann tæki helst jákvætt út úr þessum leik. „Leikmenn mínir munu læra heilan helling af því að taka þátt í þessari bikarviku og draga heilmikinn lærdóm af því að tapa þessum leik. Ég er gríðarlega sáttur við hverfið sem fylkti sér að baki leikmönnum liðsins í þessum tveimur leikjum. Það er ómetanlegt fyrir leikmenn og alla sem koma að liðinu að taka þátt í svona þýðingarmiklum leikjum og ég finn það sterkt að félagið langar til þess að komast aftur í svona stöðu aftur sem allra allra fyrst,“ sagði Bjarni.
Powerade-bikarinn ÍR Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira