Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Agnar Már Másson skrifar 1. mars 2026 13:55 Smjörvanum hefur verið skipt út fyrir Bertolli. Samsett Mynd Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir það skjóta skökku við að Landspítalinn hafi skipt Smjörva út fyrir Bertolli á kaffistofum og mötuneytum spítalans. Dýraverndarlögfræðingur telur ákvörðunina rétta og segir Íslendinga mjólkurfíkla.
Þegar stórt er smurt er oft fátt um smjör en Morgunblaðið greindi einmitt frá því í vikunni að kurr væri meðal starfsfólks Landspítalans vegna þess að ekki væri lengur hægt að fá Smjörva á kaffistofum starsfmanna og í mataraðstöðu á spítalanum. Heldur væri nú aðeins boðið upp á ítalska viðbitið Bertolli í mötuneytinu. Samkvæmt svari Landspítalans til Vísis ber stofnuninni skylda að horfa til tveggja þátta við innkaup á matvælum; hollustu og verðs. Og í þessu tilfelli væri Bertolli bæði hollari og ódýrari. Kílóverðið á Smjörva er um 2.042 krónur í Bónus en kílóverð á Bertolli um 1.037 kr, samkvæmt tölum frá verðlagssíðu ASÍ. „Aurarnir vega þyngra“ Skiptar skoðanir eru þó á þessu máli en Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, lýsir óánægju sinni í skoðanapistli á Vísi, en tekur fram að hún telji ekki að Landspítalinn sé „vondi kallinn“ í þessu máli. „Það er auðvelt að hafa samúð með stjórnendum spítalans sem eru að gera sitt besta við erfiðar aðstæður og að starfa innan þess ramma sem þeim er settur af stjórnvöldum,“ bætir hún við. Hún bendir þó á að í innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila frá 2019 segi með því að velja innlend matvæli í stað sambærilegra innfluttra matvæla sé stuðlað að auknu fæðuöryggi og eflingu atvinnustarfsemi á Íslandi. „Taka má hjartanlega undir þetta en því miður virðast aurarnir vega þyngra í innkaupum stofnana en langtímamarkmið um fæðuöryggi, eflingu atvinnustarfsemi, nýsköpunar og minni losun kolefnis.“ Hún segir það skjóta afar skökku við að fyrirtæki og stofnanir ríkisins skuli frekar velja innflutta matvöru til notkunar í sínum mötuneytum. Í sumum tilfellum sé um stórar stofnanir að ræða sem hafi töluvert mikil umsvif í innkaupum matvara. „Fjármunir, sem ella gætu stutt við markmið ríkisins í fjölda málaflokka, renna þess í stað í vasa heildsala og til framleiðslu landbúnaðarvara - erlendis. Vandfundið er skýrara dæmi um þegar önnur höndin byggir upp á meðan hin rífur niður.“ Hún segist ekki trúa öðru en að stjórnmálamenn, ráðherrar og þingmenn, taki þessi mál til gagngerrar skoðunar. „Innlend matvara er framleidd við aðstæður sem þykja öfundsverðar á erlendri grundu, notkun eiturefna og sýklalyfja er brotabrot á við það sem gerist í nágrannalöndunum og fjarlægðin frá framleiðanda til neytanda er örstutt. Landbúnaður og matvælaframleiðsla er hornsteinninn í mörgum dreifðari byggðum landsins auk þess sem þau skipta sköpum fyrir fæðuöryggi og viðnámsþol þjóðarinnar.“ „Hið holla Bertolli“ eða „hinn rándýri Smjörvi“? Árni Stefán Árnason dýraverndarlögfræðingur er á öndverðum meiði við framkvæmdastjórann, en hann stingur einmitt líka niður penna á Vísi þar sem hann fjallar einnig um það að Landspítalinn hafi valið „hið holla Bertolli“ yfir hinn „rándýra Smjörva.“ Hann tekur fram að notkun á mjólkurvörum feli í sér „eitthvert viðbjóðslegasta dýraníð“ sem á sér stað á Íslandi. „Ég kem því mjólkurkúnni og afkvæmum hennar til varnar í þessum pistli,“ skrifar Árni, sem vill meina að Íslendingar séu fíklar á allar mjólkurafurðir. „Kýr eru sæddar ár eftir ár til að verða ófrískar svo þær geti alið kálfa. Tilgangurinn er einn og aðeins einn, að stela mjólkinni sem þær framleiða fyrir kálfinn. Nýfæddur kálfurinn er dregin frá móður sinni stuttu eftir fæðingu og sér hana aldrei framar. Þessu klappa Íslendingar fyrir þegar þeir mæra hinn handónýta ost sem framleiddur er hérlendis og standa í röðum eftir allskonar ís og sulla í sig það sem er kallað Nýmjólk.“ Hann segir að framfylgd íslenskrar löggjafar í dýravernd er handónýt þegar komi að búfé og öfgakennd þegar komi að gæludýrum. „Niðurstaðan er einföld. Löggjafinn er ófær um að rita lög sem verndar dýr með sönnu og því er öll framkvæmd dýraverndar að lögum af hendi framkvæmdavaldsins í algeru skralli hjá hinni handónýtu Matvælastofnun en síðast en ekki síst hjá Viðreisnarráðherranum Hönnu Katrínu sem engan áhuga hefur á dýravernd.“
Landspítalinn Rekstur hins opinbera Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira