Flugfarþegar í hrakningum Hafsteinn Karlsson skrifar 1. mars 2026 17:03 Sextán farþegavélar með tvö þúsund farþega um borð gátu ekki lent í Keflavík fimmtudaginn 26. febrúar vegna veðurs. Þeim var því vísað á varaflugvelli á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík. Ég var farþegi í einni vélinni sem lenti á Akureyri, ásamt á þriðja hundrað annarra farþega. Þegar ljóst var í hvað stemmdi gaf áhöfnin góðar upplýsingar um ástandið og væntanlegt framhald. Vélin lenti upp úr kl. 16 á Akureyri og í fyrstu var búist við að hún færi aftur í loftið eftir eina til tvær klukkustundir. Við héldum því kyrru fyrir í vélinni og gátum keypt næringu sem enn til var í búri vélarinnar. Þegar klukkan var langt gengin í níu um kvöldið tilkynnti flugstjóri að biðin yrði lengri og að settar yrðu tröppur við vélina og okkur hleypt út og inn í flugstöðina. Þetta tók nokkurn tíma en við farþegarnir vorum róleg í vélinni þar til allt var orðið klárt. Vegna öryggisreglna urðum við að bera allan handfarangur með okkur úr vélinni. Það var auðvitað pirrandi, því sumir voru með bæði töskur, poka og yfirhafnir, en yfirflugfreyja útskýrði vel að þetta þyrfti að gera og þá gerir maður það auðvitað. Okkur var hleypt í komusal fyrir farþega sem koma frá útlöndum. Salurinn fylltist fljótlega þar sem farþegar úr hinum þremur vélunum, sem líka voru fastar á Akureyri, bættust í hóp okkar. Líklega voru þá hátt í 800 manns í salnum. Ekki voru stólar í salnum nema fyrir kannski rúmlega helminginn. Hinir þurftu því að standa. Þessi mannfjöldi hafði verið í flugstöðinni í rúma klukkustund þegar fyrst komu einhver skilaboð úr hátalarakerfi byggingarinnar. Þar var tilkynnt að ferja þyrfti nýjar áhafnir á vélarnar til að fljúga þeim suður. Á skjá í flugstöðinni var tilkynnt að brottfarartímar vélanna yrðu í kringum kl. 23. Reyndin varð svo sú að fyrsta vélin fór í loftið um eitt leytið og hinar í kjölfarið. Vélarnar voru því að lenda á bilinu tvö til hálffjögur um nóttina í Keflavík. Þetta var auðvitað mjög sérstakt ástand. Veðrið varð verra og kom fyrr en spáð hafði verið og fullt af farþegavélum komnar yfir landið og klárar í lendingu. Til allrar hamingju var hægt að lenda þeim öllum á varaflugvöllum landsins. Sumum var svo hægt að koma fljótlega til Keflavíkur en stór hópur, farþegar fjögurra flugvéla, sat eða stóð fastur í miklum þrengslum og þungu lofti í komusalnum á Akureyri klukkustundum saman. Starfsfólk flugvallarins var bæði elskulegt og lipurt og svaraði af ljúfmennsku spurningum einstakra farþega. En það vakti athygli að hátalarakerfi flugstöðvarinnar var ekki nýtt til koma upplýsingum til þess mannfjölda sem þarna var. Mig minnir að það hafi aðeins verið tvisvar, þ.e. þegar tilkynnt var að koma þyrfti með nýjar áhafnir norður og svo þegar farþegar máttu ganga út í vélarnar. Æskilegt hefði verið að nota kerfið til að koma nauðsynlegum upplýsingum til okkar sem þarna voru strandaglópar. Mig langar að nefna nokkur dæmi: Þegar fólk kom inn í salinn voru eðlilega margir sem þurftu á salerni. Beint á móti inngangi var salerni sem allir stefndu á og þar mynduðust langar raðir. Upplýsingar um annað stórt salerni sem er í salnum hefðu verið vel þegnar. Fólk var orðið nokkuð matarþurfi og gott hefði verið að fá upplýsingar um hvort og þá hvaða veitingar væru í boði og hvort þyrfti að greiða fyrir þær. Þegar leið á kvöldið var komið með stafla af pitsum og þær settar í veitingasöluna. Gott hefði verið að nota hátalarakerfið til að láta vita af þeim og að þær væru í boði endurgjaldslaust fyrir alla. Það bara spurðist út smátt og smátt. Gott hefði verið að tilkynna að stólum hefði verið bætt við og þá um leið að hvetja þá sem höfðu setið allt kvöldið að standa upp fyrir þeim sem höfðu staðið allan tímann. Það duldist engum sem þarna var að margir þeirra sem stóðu voru orðnir illa þreyttir þegar leið á kvöldið. Mikilvægt hefði verið að láta vita hvert þeir sem voru illa á sig komnir gætu leitað og fengið aðstoð. Mörgum, ekki síst þeim sem voru að koma til Íslands í fyrsta skipti, leið augljóslega ekki vel eftir hrakningar dagsins. Góð upplýsingagjöf róar fólk og bætir líðan. Eftir hrakningar dagsins hefði verið notalegt að bjóða svöngum ferðalöngum upp á ókeypis hressingu við komuna í flugstöðina t.d. vatnsflösku og eitthvað til að bíta í. Flestir þustu að veitingasölunni sem var svo sem ekki með margt á boðstólum fyrir utan gosdrykki, áfengi, sælgæti og snakk. Vatn var aðeins í boði gegn greiðslu í veitingasölunni eða fríhöfninni. Pitsusneiðar voru svo í boði ókeypis þegar leið á kvöldið og enn síðar grillaði starfsfólk veitingasölu ostasamlokur ofan í þá sem vildu án þess að taka greiðslu fyrir. Í kæliskáp í komusalnum voru ýmsir drykkir og ljóst var að margir áttuðu sig ekki á því að fyrir þá þyrfti að borga. Skápurinn var utan við veitingasöluna og merkingar óljósar um að þetta væri söluvara. Margir tóku sér drykki þar án þess að borga til að skola pitsusneiðinni eða samlokunni niður. Héldu örugglega að þeir væru líka í boði. Æskilegt hefði verið að bjóða foreldrum með ung börn mat fyrir börnin og einhverja betri aðstöðu en að veltast um í mannfjöldanum í salnum klukkutímum saman. Gera þarf ráð fyrir að svona aðstæður komi upp oftar. Þá er brýnt að virkja einhvers konar áætlun á varaflugvöllum sem gengur út á að taka vel á móti fólkinu sem er í hrakningum. Góð stjórn á aðstæðum á vettvangi er mikilvæg þar sem hugað er að velferð og þörfum fólksins. Það verður að gera betur næst. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fréttir af flugi Akureyrarflugvöllur Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar