Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. mars 2026 17:53 Bandaríkjamenn gerðu loftárás á flotastöðina í Konarak við Persaflóa í dag. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandaríska herinn hafa sökkt níu skipum íranska flotans. Sum þeirra segir hann „stór og mikilvæg“.
Hann birti fyrir stuttu nokkuð háðska færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann greinir frá þessu. Þar heitir hann því að restin af íranska flotanum hljóti sömu örlög fyrr en varir. „Þau koma til með að fljóta á hafsbotni líka bráðum!“ segir hann. Bandaríkjaher segir hann hafa eyðilagt höfuðstöðvar íranska sjóhersins að mestu leyti í annarri árás. „Að öðru leyti er í fínu lagi með sjóherinn þeirra!“ segir Bandaríkjaforseti og kvittar á færsluna. Auk þessarar færslu hefur Trump rætt símleiðis við miðla vestanhafs þar sem ýmislegt kemur fram. Hann sagði í samtali við Fox News are 48 íranskir „leiðtogar“ hafi verið drepnir í loftárásum Bandaríkjahers. Í samtali við Atlantic sagði hann írönsk stjórnvöld vilja taka upp samningaviðræður að nýju. Óljóst er um hvað yrði þá samið. „Þeir vilja ræða saman, og ég gekkst að því að tala saman, þannig að ég ætla að tala við þá. Þeir hefðu átt að gera það fyrr. Þeir hefðu átt að gefa það eftir sem var praktískt og auðvelt í framkvæmd fyrr. Þeir biðu of lengi,“ sagði Bandaríkjaforseti. Líkt og fram hefur komið greindi bandaríski herinn frá því að þrír bandarískir hermenn hefðu látið lífið og fimm særst alvarlega frá því að árásir hófust. Írönsk stjórnvöld segja 153 hafa dáið í loftárás á stúlknaskóla í borginni Minab.
Íran Bandaríkin Ísrael Mest lesið Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Erlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Fleiri fréttir Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Sjá meira