Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. mars 2026 21:50 Donald Trump Bandaríkjaforseti birti ávarp sitt á samfélagsmiðlum í kvöld. Skjáskot Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin ekki munu hætta hernaðaraðgerðum sínum í Íran fyrr en hverju einasta markmiði sé náð. Hann kveðst eiga von á frekara mannfalli innan raða Bandaríkjahers en heitir því að hefna hinna föllnu og segir klerkastjórnina heyja stríð við siðmenninguna.
Hann birti ávarp á samfélagsmiðlum fyrir skömmu þar sem hann fór yfir atburði undanfarins eins og hálfs sólarhrings. „Í gærkvöldi ómuðu fagnaðaróp írönsku þjóðarinnar á götum úti um allt Íran. Öll herstjórnin er farin og margir þeirra vilja gefa sig fram til að bjarga lífi sínu. Þeir vilja friðhelgi og þeir hringja í þúsundatali,“ sagði hann. „Hernaðaraðgerðir standa yfir af fullum krafti og þeim verður haldið áfram þar til hverju einasta markmiði okkar er náð. Við höfum háleit markmið.“ Fleiri muni falla Í dag var greint frá því að þrír Bandaríkjamenn hefðu fallið í átökunum og fleiri alvarlega særðir. Frekari upplýsingar um andlát þeirra og hvernig þau bar að liggja ekki fyrir. „Fyrr í dag greindi miðlæg stjórnstöð hersins (e. CENTCOM) að þrír bandarískir hermenn hefðu fallið. Við syrgjum þessa sönnu föðurlandsvini öll sem eitt sem fórnuðu lífi sínu í þágu þjóðarinnar.“ „Því miður, verða þeir líklega fleiri. Það er því miður þannig sem það er. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir það. En Bandaríkin munu hefna þeirra og koma þungu höggi á hryðjuverkamennina sem háð hafa stríð gegn siðmenningunni. Þeir hafa háð stríð gegn sjálfri siðmenningunni,“ sagði Trump. Restin undir Írönum komin Að lokum hvatti hann byltingarvörðinn til að leggja niður vopn sín, ella eigi þeir dauðann vísan. „Ég skora á alla íranska föðurlandsvini sem þrá frelsið að grípa þetta tækifæri, vera hugrakkir, vera djarfir, vera hetjur og endurheimta land sitt. Ameríka stendur með ykkur. Ég gaf ykkur loforð og ég stóð við það loforð. Restin er undir ykkur komin en við verðum til staðar til að hjálpa,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira